Lífið

„Vinirnir mega alveg svitna aðeins,“ - Bibbi í Skálmöld gefur út skáldsögu

Guðrún Ansnes skrifar
Bókin kemur út þann 5.nóvember næstkomandi. „Ég er búinn að gefa út helling af plötum og hlutir hætta að vera nýjir. En nú er ég allt í einu einn, að fá alla til að fíla nýju bókina mína,” segir Bibbi, spenntur.
Bókin kemur út þann 5.nóvember næstkomandi. „Ég er búinn að gefa út helling af plötum og hlutir hætta að vera nýjir. En nú er ég allt í einu einn, að fá alla til að fíla nýju bókina mína,” segir Bibbi, spenntur. Fréttablaðið/Anton Brink
„Ég hef alltaf sagt sögur, bæði í sambandi við Skálmaldarplöturnar, skrifað leikrit og hitt og þetta. Ætli ég hafi ekki alltaf haft þetta svo á bak við eyrað, en ferlið óx mér í augum. Það þarf rosalega mörg orð í eina bók,“ segir Snæbjörn, sem oftar en ekki gengur undir nafninu Bibbi.

 „Svo fór ég á túr með Skálmöld og bloggaði á meðan. Einhvern veginn hrönnuðust orðin upp og daglega voru komin um þúsund orð,“ útskýrir Bibbi og segir að þá hafi runnið upp fyrir honum að líklega gæti hann alveg splæst í eina skáldsögu eða svo.

Segir sagan Gerill frá Arngrími Sævari Eggertssyni, sem langar til að meika það í tónlistinni. Það ætlar kauði sér að gera með tveimur mögnurum og óbilandi sjálfstrausti. Aðspurður hvort þetta sé sjálfsævisaga með skáldlegu ívafi segir Bibbi svo ekki vera, þótt sannarlega megi sjá þar einhver líkindi. „Stundum stendur maður sig að verki, þegar maður er að spila sig stóran og töff. Ég hef gert það að gamni mínu að halda utan um aðstæður þar sem ég hef hagað mér kjánalega og verið beinlínis hallærislegur í aðstæðum þar sem ég taldi mig frekar töff. Ég nota þannig aðstæður, en fæ líka lánuð karaktereinkenni héðan og þaðan. Það verður alveg hægt að setja í samhengi, “ bendir hann á. „Félagarnir eru dálítið að pissa á sig, og spyrja svolítið „þú segir nú ekki allt úr rútunni“, en það er bara allt í lagi að láta þá svitna svolítið,“ skýtur hann svo að og skellir upp úr.

Kápan er stórfengleg og verður sannarlega spennandi að grúska í innihaldinu.
Ætlar sér ekki hefðbundnar leiðir

„Að gefa út bók, fara svo og lesa upp úr henni í Eymundsson og bíða svo eftir að um hana verði kannski fjallað í Kiljunni heillaði mig ekki, en ég vinn hjá Pipar auglýsingastofunni og hef fengið bókaútgáfur inn á borð til mín. Ég sá þannig fyrir mér að gera eitthvað stærra og meira, viðraði þá hugmynd við bókaútgáfuna, reif smá kjaft og var með það sama kominn með samning. Þá var komið að því að standa við stóru orðin og gera eitthvað annað,“ segir Bibbi. Úr varð að nú kemur Bibbi til með að flétta saman upplestur og rokkmennskuna. 

„Ég ætla sem sagt alveg að mæta í Eymundson, en ég ætla að spila lögin sem Arngrímur semur í bókinni.“ Má því búast við aðeins öðrum vinkli á Bibba, þar sem hann segist sannarlega finna fyrir ákveðnu frelsi þegar hann semur tónlist undir nafni Arngríms.

„Þannig getur maður verið passlega asnalegur, og gert eitthvað allt öðruvísi.“ 

Fyrir áhugasama um framvindu mála hefur Bibbi snarað í fésbókarsíðu þar sem öllum nánari upplýsingar um Geril, Skálmöld, Ljótu Hálfvitana og allt heila klabbið, verður samviksusamlega útdeilt. "Þá er maður ekki að bögga vinina stanslaust, þeir bara af-líka við síðuna," laumar Bibbi að í blálokin. 


Tengdar fréttir

Fá útrás fyrir búningablætið

Hljómsveitin Mannakjöt sem skipuð er kanónum úr íslensku tónlistarlífi sendir frá sér sitt fyrsta lag í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×