Íslenski boltinn

„Við stöndum þétt að baki Bjarna“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
Sverrir Einarsson, formaður knattspyrnudeildar Fram, segir enga örvæntingu ríkja í herbúðum félagsins þrátt fyrir slæmt gengi liðsins í Pepsi-deild karla að undanförnu.

Fram er komið í neðsta sæti Pepsi-deildar karla eftir 2-0 tap fyrir ÍBV í gær og hefur nú tapað fjórum leikjum í röð í deildinni.

Miklar breytingar voru gerðar á leikmannahópnum fyrir leiktíðina og nýr þjálfari ráðinn. Bjarni Guðjónsson tók við sínu fyrsta þjálfarastarfi á ferlinum og var falið það verkefni að byggja upp nýtt lið, að stærstum hluta með ungum leikmönnum með litla reynslu úr efstu deild.

„Þegar við fórum af stað með þessa vinnu í haust var ákveðið að gera breytingar. Ákveðið var að lækka launakostnað og byggja liðið upp með ungum strákum, fyrst og fremst,“ sagði Sverrir í samtali við Vísi í dag.

„Öll uppbygging breyttist hjá okkur og við gerðum okkur fyllilega grein fyrir því að þetta yrði erfitt. Að það yrði brekka og við erum í brekku núna. Við förum samt ekki á taugum vegna þess,“ bætir Sverrir við.

Leikmenn Fram fagna marki í sumar.Vísir/Valli
Hann segir að leikmenn liðsins öðlist nú dýrmæta reynslu í efstu deild, enda hafi þeir komið til Fram til að spila leiki í Pepsi-deild karla.

„Það er engin örvænting hjá okkur. Við stöndum þétt að baki þjálfara okkar og ekki síst leikmönnunum sjálfum,“ segir Sverrir og bætir við að liðið ætli sér ekki að „koma með neinar reddingar“ af leikmannamarkaðnum.

„Það er ekkert sérstakt sem við erum að skoða á leikmannamarkaðnum. Okkur hefur gengið illa að skora en Guðmundur Steinn [Hafsteinsson] hefur lítið spilað vegna meiðsla og er að verða tilbúinn aftur. Hann kemur fljótlega inn í liðið.“

Ögmundur Kristinsson var lykilmaður í liði Fram áður en hann hélt til Randers í Danmörku.Vísir/Daníel
Ögmundur Kristinsson yfirgaf herbúðir Fram á dögunum en Sverrir segir að það sé ekki endilega á dagskránni að fá nýjan markvörð. „Hörður Fannar [Björgvinsson] er nú orðinn okkar aðalmarkvörður þó svo að hann sé ungur að árum og fái tækifærið fyrr en áætlað var. Hann hefur staðið sig frábærlega,“ segir Sverrir og segir ekkert hæft í þeim sögusögnum að Frederik Schram, markvörður U-21 liðs Íslands, sé á leið til félagsins.

Sverrir ítrekar að hafist hafi verið handa við að byggja upp nýtt lið í haust og að ekki verði breytt um stefnu nú.

„Það getur kostað dýfur - hvort sem það þýðir að við munum falla eða ekki. Við ætlum okkur að byggja upp gott lið og hugsa til framtíðar.“

„Þetta kostar baráttu og vinnu. Allir verða að standa saman í félaginu og það er styrkur Fram að menn standa saman þegar á reynir. Auðvitað eru óánægjuraddir inn á milli eins og gengur að gerist en við munum ekki hvika frá okkar stefnu.“


Tengdar fréttir

Björgólfur hættur hjá Fram

Fram hefur sagt upp samningi Björgólfs Takefusa við félagið og tekur uppsögnin gildi nú þegar. Honum var tilkynnt þetta á fundi með formanni félagsins, Sverri Einarssyni, í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×