Innlent

„Við gætum boðið flóttafólki alveg afskaplega gott líf“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Fjöldi barna hefur misst fjölskyldir sínar á flótta undan átökunum í Sýrlandi.
Fjöldi barna hefur misst fjölskyldir sínar á flótta undan átökunum í Sýrlandi. Vísir/EPA
„Ísland á bara að sjá sóma sinn í að taka á móti flóttamönnum. Við erum velmegandi land og getum vel tekið á móti flóttamönnum,“ segir Hákon Guðröðarson, hóteleigandi á Neskaupsstað. Hann skrifaði færslu inn á hópinn 'Kæra Eygló Harðar - Sýrland kallar' á Facebook í nótt sem vakið hefur mikla athygli. Þar bíður hann fram heimili sitt og mannsins sín til þess að taka á móti einhverjum af þeim börnum sem glatað hafa fjölskyldum sínum undanfarin misseri.

„Reglugerðir á Íslandi heimila ættleiðingar á hinsegin heimili en á sama tíma hefur íslenska ríkið enga samninga við lönd sem leyfa ættleiðingar til hinsegin foreldra. Við munum því líklega seint fá tækifæri til að ala upp okkar eigin börn. Við mundum glaðir vilja bjóða flóttabörnum varanlegt fóstur og ástríkt heimili, borga undir þau fargjöld og standa straum af öllum kostnaði við uppeldi þeirra og tryggja þeim öruggt líf,“ segir Hákon í færslunni sem fengið hefur rúmlega 2700 'like'.

Sjá einnig -  Íslendingar bregðast við kalli Eyglóar: „Flóttamenn eru mannauður, reynsla og hæfileikar“

„Þessi póstur minn var kannski fyrst og fremst ádeila á það að hinsegin fjölskyldur eiga mjög erfitt með að eignast börn. Þetta er með síðustu réttindunum sem við eigum eftir að fá, þetta hinsegin samfélag,“ segir Hákon í samtali við Vísi. „Það eru rosalega fá úrræði fyrir okkur. Íslensk ættleiðing gefur okkur þau svör að Ísland vilji ekki styggja samningslönd sín sem við erum að ættleiða frá vegna þess að í sumum löndum er samkynhneigð hreinlega ólögleg. Við höfum aðstæður til að bjóða börnum gott líf en fáum ekki tækifæri á því.“

Hákon Guðraðarson og eiginmaður hans, Hafsteinn HafsteinssonHákon Guðraðarson
Nægt rými fyrir flóttamenn á Íslandi

Hákon segir að hann og maður sinn, ásamt fleirum samkynhneigðum hjónum og pörum, geti búið flóttamannabörnum sem komi til Íslands gott líf. Sú staðreynd að þeir séu tveir karlmenn þýði það ekki að þeir geti boðið verri aðstæður en annað fólk.

„Við gætum boðið þeim alveg afskaplega gott líf. Við búum á friðsælum og góðum stað, við eigum stórt húsnæði, við búum við hliðin á sveit og fjölskyldan mín er sveitafólk. Við gætum boðið þeim öll lífsins gæði. Maðurinn minn er heimavinnandi listamaður. Við myndum bjóða upp á mikið öryggi og við höfum nóg að gefa. Það yrðu ekkert verri aðstæður að alast upp hjá okkur eða hjá Jóni og Gunnu, bara af því að við erum tveir karlmenn ætti það ekki að breyta neinu.“

Sjá einnig - Flóttamannavandinn: Algjör sprenging í skráningu sjálfboðaliða hjá Rauða Krossinum

Telur Hákon að Íslandi geti vel tekið á móti fleiri flóttamönnum og þar geti landsbyggðin tekið á móti, enda vanti vinnuafl í mörgum sveitarfélögum á landsbyggðinni.

„Það er rúm fyir flóttamenn á Íslandi. Sérstaklega hérna á landsbyggðinni. Það mun ekkert væsa um okkur ef við tökum við 500 flóttamönnum. Hérna á Neskaupsstað, þar sem ég bý, er umframeftirspurn eftir vinnuafli og afhverju ætti hvert og eitt sveitarfélag ekki að fá tvær fjölskyldur í hvert þorp? Við erum aftur komin í þá stöðu að þurfa að flytja inn erlent vinnuuafl sem í flestum tilvikum ætlar sér að fara heim eftir nokkur ár. Flóttamenn koma hingað og ætla sér að verða Íslendingar. Það er til nóg af byggðum úti á landi sem vill taka á móti flóttamönnum og það er nóg til af fólki sem vill taka þátt í kostnaðinum, þetta þarf ekki að kosta ríkið það mikinn pening.“

Sjá einnig - Íslenskur læknir vildi bjarga austurrísku barni frá nasistum en fékk skýringarlausa neitun

Hákon veltir því fyrir sér hvort að Íslandi geti talist til norrænna ríkja miðað við hversu fáum flóttamönnum Ísland taki við?

„Hvernig getum við borið okkar saman við frændþjóðir okkar í Skandinavíu en tekið á móti örfáum flóttamönnum? Að taka á móti 50 flóttamönnum er bara ekki neitt. Við þyrftum að taka á móti 1500 flóttamönnum á ári ef við ætlum að ná því þeim fjölda sem hin norrænu ríkin eru að taka á móti, miðað við höfðatölu.“


Tengdar fréttir

Gætum tekið við hundruðum

Fjölmargir Íslendingar kalla eftir því að Ísland taki á móti fleiri flóttamönnum en áform ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir. Deildarstjóri Rauða krossins í Reykjavík segir það vera stjórnvalda að ákveða töluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×