Tónlist

„Við erum helvíti stemmdir fyrir þessu“

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Sólstafir er ein þekktasta þungamálmssveit landsins.
Sólstafir er ein þekktasta þungamálmssveit landsins. mynd/Stebba ósk
Þungarokkssveitin Sólstafir leikur frumsamið efni við kvikmyndina Hrafninn flýgur eftir Hrafn Gunnlaugsson á kvikmyndatónleikum Reykjavík International Film Festival í ár. Myndin var frumsýnd árið 1984 og fagnar því þrjátíu ára afmæli í ár. Guðmundur Óli Pálmason, trommari Sólstafa, segir að hljómsveitin hafi beint og óbeint verið undir áhrifum frá myndinni í gegnum tíðina.

„Við erum helvíti stemmdir fyrir þessu. Maður var alinn upp við þessa mynd og hún hefur eiginlega verið uppáhaldsmynd okkar allra síðan við vorum krakkar. Þetta smellpassar,“ segir hann. Tónlistin sem Sólstafir spila hefur einmitt verið kölluð víkingarokk en í tilkynningu frá RIFF segir:

„Tónlist bandsins er í senn jafn mikil afurð hvínandi heimskautastorma og rauðglóandi hrauns landsins, sem og grænna engja, vindbarinna heiða og salta sævarins sem umlykur eyna.“

Í fyrra voru það þöglar myndir eftir franska frumkvöðulinn George Mélies sem leikin var tónlist undir, en árið áður var það krautrokk-goðsögnin Damo Suzuki sem lék tónlist ásamt íslenskum tónlistarmönnum við tímamótaverk þýska expressjónismans, Metropolis.

Tónleikarnir fara fram hinn 1. október í Salnum í Kópavogi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×