Erlent

„Við erum ekki hérna til að leggja hald á olíu“

Samúel Karl Ólason skrifar
Jim Mattis, nýkominn til Baghdad.
Jim Mattis, nýkominn til Baghdad. Vísir/AFP
Jim Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, mætti í óvænta heimsókn til Írak í morgun. Þar vill hann kynna sér hvernig baráttan gegn Íslamska ríkinu og frelsun Mosul gengur. Hann þurfti þó að byrja á því að takast á við vandræði sem hafa komið upp vegna ummæla og aðgerða Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.

Í kosningabaráttunni og nú síðast í janúar sagði Trump að Bandaríkin hefðu átt að leggja hald á olíu Írak, eftir að hafa komið Saddam Hussein frá völdum árið 2003. Í ræðu í höfuðstöðvum CIA í janúar sagði hann: „Við hefðum átt að hirða olíuna, en okei. Kannski fáið þið annað tækifæri.“

Mattis sagði hins vegar að það stæði alls ekki til.

„Við erum ekki hérna til að leggja hald á olíu,“ sagði Mattis við blaðamenn sem fylgdu honum í Baghdad í morgun. Á árum áður leiddi Mattis hermenn Bandaríkjanna í Írak.

Þá þykir líklegt að Mattis muni þurfa að svara spurningum ráðamanna vegna ferðabanns Trump. Írak er eitt þeirra sjö landa sem „múslimabannið“ svokallaða nær til. Samkvæmt því mættu Írakar ekki ferðast til Bandaríkjanna um tíma.

Fjarlægist yfirlýsingar forsetans

Hann sagði blaðamönnum að hann hefði ekki séð nýju forsetatilskipunina, en hann væri fullviss um að Írakar sem hefðu barist með bandarískum hersveitum, til dæmis í hlutverki túlka, myndu fá að koma til Bandaríkjanna.

Mattis hefur að undanförnu sýnt fram á að hann er ekki sömu skoðunar og Trump á ýmsum málefnum. Til dæmis hefur Trump sagt að hershöfðinginn fyrrverandi sé ekki sammála sér um notagildi pyntinga. Hann horfir ekki til Moskvu með jafn mikilli jákvæðni og Trump og segir yfirvöld þar vilja brjóta upp Atlantshafsbandalagið.

Þá sagði Mattis í gær að hann hefði ekkert út á fjölmiðla að setja eftir að Trump lýsti þeim sem „óvinum bandarísku þjóðarinnar“.

Auk Bandaríkjanna styðja yfirvöld Íran við bakið á Írökum í baráttunni gegn ISIS og í orustunni um MosulMattis hefur lýst því yfir að hann hafi áhyggjur af auknum áhrifum Írana á Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×