Innlent

„Við erum búin að fá nóg“

Birta Björnsdóttir skrifar
Í fréttum okkar undanfarið höfum við fjallað um svonefnda ofurtolla á innflutning á landbúnaðarvörum, í kjölfar þess að Hagar sendu inn beiðni til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um afnám tollanna við innflutning á nokkrum tegundum af ostum.

Sama hver niðurstaðan úr ráðuneytinu verður eru margir þeirrar skoðunar að við núverandi kerfi verði ekki unað.

„Við teljum einfaldlega að heilbrigð samkeppni sé það sem við eigum að byggja atvinnulífið á Íslandi á. Landbúnaðartollarnir eru einfaldlega hindrun á þeim vegi," segir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.

„Við erum einfaldlega búin að fá nóg."

Almar segir að dæmi um óhagkvæmni í núverandi kerfi séu mýmörg, meðal annars þegar kemur að frosnum frönskum kartöflum.

„Dæmin eru áhugaverð og ef við skoðum til dæmis frönsku kartöflurnar sem við neytum, þær eru í raun framleiddar úr erlendu hráefni, erlendum kartöflum það er að segja. Sú tollvernd sem þar er í gangi missir marks því þar er í raun ekki verið að vernda innlenda framleiðslu eins og áskilið er," segir Almar.

„Ofaní það er tollurinn hér 76% á franskar kartöflur frá Evrópusambandinu, samanborið við eingöngu um 14% toll þegar við horfum á innflutning á sambærilegri vöru frá Evrópusambandinu. Munurinn er fimmfaldur."

Þó að dæmið um frosnu frönsku kartöflurnar sé eitt af öfgakenndari birtingarmyndum hinna svonefndu ofurtolla er það engu að síður áhugavert að árið 2012 greiddu landsmenn um 200 milljónir króna í tolla af frosnum frönskum.

„Ég er viss um að neytendur hefðu verið til í að eyða þessum fjármunum í annað," segir Almar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×