Erlent

„Við elskum að drekka blóð“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Rabie Shehada
Rabie Shehada Vísir/AFP/Skjáskot
Liðsmenn Íslamska ríkisins, sem nú ráða stórum hluta landsvæðisins fyrir botni Miðjarðarhafs, hafa skotið heimsbyggðinni skelk í bringu með afhöfðunum sínum og fjöldamorðum en nú hefur meðlimur samtakanna stigið fram og sagt að samtökin hafi ánægju af því að „drekka blóð“.

Skæruliðinn Rabie Shehada, sem segir sig tilheyra Íslamska ríkinu og gengur iðulega undir nafninu „Palestínuslátrarinn“, lét ummælin falla í myndbandi sem birt var á netinu í vikunni og nálgast má með því að smella hér.

„Ég sver að við erum hópur fólks sem elskar dauðann rétt eins og þið elskið að lifa. Ég sver að við elskum að drekka blóð. Við komum hingað til að slátra ykkur,“ segir Shehada í myndskeiðinu. „Við elskum að deyja rétt eins og þið elskið að lifa,“ bætti hann við.

Shehada er 26 ára gamall og er talinn hafa fæðst í Nasaret í norðurhluta Ísraels en meirihluti íbúa svæðisins eru af arabískum uppruna.

Að sögn fréttamanns Al arabia lærði maðurinn vélarverkfræði í þrjá mánuði í Nasaret áður en hann hvarf úr háskólanum án nokkurra skýringa.

Síðar kom í ljós að hann hafði stungið af til Tyrklands þar sem hann hélt yfir landamærin til Sýrlands þar sem hann gekk til liðs við Sýrlenska frelsisherinn. Þaðan hafi hann svo flutt sig yfir til Íslamska ríkisins.

Í samtökunum tók hann svo upp skæruliðanafnið Abu Mussaab al-Saffouri í höfuðið á bænum Safouri nærri Nasaret.

Að sögn fréttamannsins er fjölskylda mannsins – spúsa hans og sonur – í miklu ójafnvægi eftir að ummælin mannsins rötuðu á netið og neita að tjá sig opinberlega um hann.

Utanríkisráðherrar fjölda ríkja hafa heitið því aðstoða írösk stjórnvöld í baráttu sinni gegn vígamönnum samtakanna. Verði „öllum ráðum beitt“ gegn samtökunum sem ráða yfir stórum landsvæðum í bæði Írak og Sýrlandi.  AP fréttaveitan segir þingmenn í Bandaríkjunum, sem nú ræða áætlun Obama um árásir gegn Íslamska ríkinu, telja að Bandaríkin muni dragast inn í annað stríð í Mið-Austurlöndum.


Tengdar fréttir

Boðað til mótmæla gegn IS í Danmörku

Boðað hefur verið til mótmæla gegn Íslamska ríkinu í Kaupmannahöfn og Árósum í dag og er búist við að hundruð múslimar taki þátt í þeim. Vel á annað þúsund hafa boðað komu sína á mótmælin í Kaupmannahöfn í gegnum Facebook.

Stjórnarher Íraks nær Haditha stíflunni á sitt vald

Írakski stjórnarherinn segist hafa náð að flæma meðlimi Hins íslamska ríkis frá Haditha stíflunni og stórum svæðum þar í kring. Bandaríkjamenn hafa gert loftárásir á vígamenna á þessu svæði sem virðist hafa hjálpað stjórnarhernum í baráttunni.

Obama safnar liði gegn vígasveitunum

Bandaríkjaforseti hyggst útskýra hernaðaráform sín gegn Íslamska ríkinu, sem hefur vaðið uppi í Sýrlandi og Írak. Arababandalagið hefur samþykkt hernaðaraðgerðir gegn Íslamska ríkinu, en lýsir þó ekki stuðningi við áform Bandaríkjanna.

Gerðu loftárásir á vígamenn í Írak

Bandaríkjamenn hafa síðustu tvo daga gert harðar loftárásir á bækistöðvar Hins íslamska ríkis í Írak nálægt Sinjar fjalli suðvestur af höfuðborginni Bagdad. Þetta eru fyrstu árásirnar sem gerðar eru eftir að Obama forseti lýsti því yfir að gefa þyrfti í í baráttunni við vígamennina sem nú ráða stórum svæðum í Írak og í Sýrlandi.

Þriðji Vesturlandabúinn tekinn af lífi

"Þeir eru engir múslimar, þeir eru skrímsli,“ sagði David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, um liðsmenn Íslamska ríkisins sem í gær birtu myndband sem sagt var sýna afhöfðun bresks hjálparstarfsmanns, David Haines að nafni.

Íslamska ríkið mun ekki hræða Bandaríkin

Barack Obama Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin muni ekki láta Íslamska ríkið hræða sig, eftir að hryðjuverkasamtökin afhöfðuðu bandaríska blaðamanninn Steve Sotloff.

Funda í París um ástandið í Írak og Sýrlandi

Johnn Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna mun í dag hitta kollega sína frá fjölda ríkja á fundi í París sem ætlað er að afla baráttunni við Hið íslamska ríki í Írak og í Sýrlandi fylgis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×