Innlent

„Við björgum mörgum en það eru líka margir sem deyja“

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Sameinuðu þjóðirnar telja að um átta hundruð mans hafi látist í átökunum sem nú geysa í Jemen, og tæplega þrjú þúsund særst. Íslenskur skurðhjúkrunarfræðingur, sem er stödd í Jemen á vegum Rauða Krossins, segir ástandið þar hræðilegt og almenna borgara illa haldna.

Í Jemen hefur ríkt upplausn í marga mánuði þar sem upp­reisn­ar­flokk­ar berjast um völdin. Sádi-Arabar tilkynntu í dag að þeir myndu verja um þrjú hundruð milljónum dollara í neyðaraðstoð til Jemen, en Sameinuðu þjóðirnar hafa kallað eftir tafarlausu vopnahléi milli stríðandi fylkinga í landinu og aðstoð alþjóðasamfélagsins.

Rauði krossinn á Íslandi brást við neyðarkalli Alþjóða Rauða krossins sem kom í kjölfar loftárása sem 25. mars síðastliðinn. Síðan þá hafa yfir 300 fallið, þar af yfir 200 óbreyttir borgarar. Þúsundir hafa særst og eru margar borgir án vatns og rafmagns.

Elín Jakobína Oddsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur, er stödd í hafnarborginni Aden í Jemen.  Hún segir að á svæðinu séu átök allan sólarhriginn. Borgin sé mikið hættusvæði. 

„Aden er núna eins og draugabær. Það er allt lokað og engin starfsemi í borginni. Það eru mjög fáir á borgum úti, rusl safnast upp, þetta er bara algjörlega eins og draugabær,“ segir hún. 

Um 150 þúsund Jemenar hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna ófriðarins í landinu. Elín segir að fólk sé illa á sig komið. 

„Þeir sem koma inn til okkar og þurfa á aðgerðum að halda hafa orðið fyrir skotárásum. Þá skotárásum í brjósthol, kvið, útlimi og höfuð. Fólk er að mismikið slasað. Við vinnum mikið og gerum margar aðgerðir og björgum mörgum. En það eru líka margir sem deyja“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×