Lífið

„Vandræðalegt þegar við fundum út að það væri typpadótið sem pípti í"

SM skrifar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Heimdallur
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Heimdallur Mynd/ Jóhannes Stefánsson

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, formaður Heimdallar, deildi skemmtilegri sögu með Facebook-vinum sínum á þriðjudag, en Áslaug Arna á alls 2.320 vini á samskiptasíðunni vinsælu.

Áslaug var stödd í París og fóru þjófavarnir verslana í gang í hvert sinn sem hún gekk inn eða út. Hún komst loks að því að rör og glös sem hún hafði keypt fyrir gæsun höfðu orsakað vandræðin. „Það var ansi vandræðalegt þegar við fundum út að það væri typpadótið sem pípti í …“ skrifaði formaðurinn á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×