Handbolti

Valsmenn án Óla Stef til áramóta

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ólafur Stefánsson.
Ólafur Stefánsson. Vísir/Daníel
Ólafur Stefánsson mun taka sér tímabundið hlé frá þjálfun karlaliðs Vals í handbolta. Jón Kristjánsson og Óskar Bjarni Óskarsson munu leysa hann af. Fyrsti leikur Valsmanna í Olís-deildinni er gegn ÍR á fimmtudaginn í næstu viku.

Í tilkynningu frá Valsmönnum segir að samkomulag hafi orðið um að Ólafur Stefánsson taki sér tímabundið leyfi frá daglegri þjálfun meistaraflokks karla  Nýstofnað fyrirtæki Ólafs kalli á mikla viðveru, meiri en svo að hægt sé sinna bæði þjálfun og uppbyggingu fyrirtækisins af þeim metnaði og fagmennsku sem krafist sé á báðum stöðum.  

„Að breyta um þjálfara svo stuttu fyrir mót er ekki ákjósanleg staða en Handknattleiksdeild Vals hefur fullan skilning á stöðu Ólafs og gert er ráð fyrir að Ólafur taki aftur við daglegri þjálfun um áramót. Þjálfun liðsins mun verða unnin í samvinnu við Ólaf og mun áfram byggja á þeim grunni sem hann hefur lagt síðastliðið ár.“

Jón Kristjánsson og Óskar Bjarni Óskarsson munu sinna þjálfun og stjórn liðsins í fjarveru Ólafs. Þó muni Ólafur sinna sérþjálfun hjá félaginu eftir því sem tími hans leyfi á þessu tímabili.

Að neðan má sjá upplýsingar frá Valsmönnum um nýju þjálfarana, Óskar Bjarna og Jón.

Jón Kristjánsson er einn sigursælasti handknattleiksmaðurinn úr röðum Vals. Hann hefur unnið 8 Íslandsmeistaratitla og 4 bikarmeistaratitla með félaginu, leikið 82 landsleiki og sinnt þjálfun hjá Val og ÍR.

Óskar Bjarni Óskarsson er öllum áhugamönnum um handknattleik að góðu kunnur.  Sem leikmaður og þjálfari með Val hefur hann unnið fjölmarga titla auk þess að vera aðstoðarlandsliðsþjálfari um árabil, silfurverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum í Peking 2008, bronsverðlaunahafi frá Evrópumótinu í Austurríki 2010, svo fátt eitt sé talið.  Óskar Bjarni mun  auk þessa sjá um þjálfun meistaraflokks kvenna hjá Val ásamt Kristínu Guðmundsdóttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×