Innlent

„Vægast sagt sérstök staða og ekki trúverðug“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Gylfi Ingvarsson.
Gylfi Ingvarsson. vísir/vilhelm
Gylfi Ingvarsson, talsmaður starfsmanna álversins í Straumsvík, segir stöðuna sem upp sé komin ótrúverðuga. Ljóst sé að ekki sé um kjaradeilu að ræða og telur hugsanlegt að stjórnendur hyggist loka álverinu alfarið.

„Við fengum staðfestingu á því að það sem þeir eru að tala um, einhver 43 störf, að fyrirtækið spari 45 milljónir á ári með því að ná þessu í gegn. Það er bara djók. Ef fyrirtæki sem veltir milljörðum stendur og fellur með 45 milljónum króna á ári, þá er eitthvað annað á bak við það,“ sagði Gylfi í Bítinu í morgun.

Boðuðu verkfalli starfsmanna álversins í Straumsvík var aflýst í gærkvöldi. Kjaradeilan er þó enn óleyst, meðal annars vegna deilna um kröfu stjórnenda álversins um aukna heimild til verktöku. Gylfi segir ekki koma til greina að starfsfólk semji þannig frá sér störfin.

„Það sem rætt hefur verið í kringum okkur er að tilgangur Rio Tinto í þessu er ekki þessi harða deila við okkur heldur eitthvað annað. Annað hvort að reyna að þrýsta fram lækkun á raforkuverði eða eitthvað annað sem við erum ekki aðilar að,“ segir hann. Hugsanlega sé það rétt að loka eigi álverinu innan fimm ára.

„Það er hugsanlegt. En þá verða þau að gera það á sínum forsendum, en ekki á forsendum kjaradeilna við starfsmenn fyrirtækisins. Rannveig Rist og co fengu launahækkanir í ársbyrjun og eru búin að semja við alla millistjórnendur en þar hafa ekki verið neinar kröfur um það að þeirra launahækkanir séu háðar einhverjum skilyrðum,“ segir Gylfi. „Þetta er vægast sagt sérstök staða og ekki trúverðug.“

Þá segir hann það hafa sannast á ögurstundu að stjórnendur álversins hafi ekki ætlað sér að semja við starfsfólkið. Ákvörðun um að aflýsa verkfallinu sé ekki til þess fallin að aðstoða eigendur eða stjórnendur fyrirtækisins við að loka álverinu. Áfram verði reynt að knýja fram gerð kjarasamninga.

 „Við erum enn í þeirri stöðu að við erum enn þá samningslaus og áfram undir verkstjórn ríkissáttsemjara. Aðilar þurfa að halda áfram og það er alltaf mjög súrt fyrir starfsmenn að vinna í því umhverfi að viðsemjendur okkar og atvinnurekandi vilji ekki semja við á á sömu kjörum og á almennum markaði,“ segir Gylfi.

Hlusta má á viðtalið við hann í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×