Glamour

"Tískuvikan í París er einn mest ógnvekjandi tími ævinnar“

Ritstjórn skrifar
J.Law prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Vanity Fair.
J.Law prýðir forsíðu nýjasta tölublaðs Vanity Fair. Mynd/Skjáskot
Jennifer Lawrence prýðir nýjustu forsíðu Vanity Fair. Ljósmyndaranum Peter Lindberghen var á bakvið myndavélina þar sem Lawrence klæddist meðal annars Dior, Armani, Valentino og fleiri hönnuðum. 

Þrátt fyrir að Lawrence sé komin með svarta beltið í að klæðast fötum eftir heimsins þekktustu hönnuði er margt við tískuheiminn sem henni finnst ógnvekjandi, þá sérstaklega tískuvikan í París. 

„Maður gerir sig til uppi á hótelherbergi og líður vel með sjálfan sig. Maður hefur bara sjaldan litið jafn vel út. Svo kemur maður út og sér allt bransafólkið sem er hávaxið og í geðveikum fötum. Þá líður mér eins og rusli.“

Það er ef til vill ansi lýsandi fyrir umhverfið á tískuvikunum fyrst að hin afslappaða  Jennifer Lawrence fer í kerfi í hverri tískuviku.

Forsíðuþátturinn var skotinn af Peter Lindbergh.Mynd/Skjáskot





×