Lífið

"Þykir leitt að hafa verið svona mikill fáviti“

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Lennon áritar plötu fyrir Chapman. Chapman skaut hann til bana sex klukkustundum seinna.
Lennon áritar plötu fyrir Chapman. Chapman skaut hann til bana sex klukkustundum seinna.
Mark David Chapman, morðingi Bítilsins Johns Lennon, baðst afsökunar í síðustu viku fyrir „að hafa verið svona mikill fáviti“ þegar hann myrti Lennon fyrir 34 árum. Chapman lét þessi orð falla þann 20. ágúst þegar hann sótti um reynslulausn í áttunda skiptið.

Beiðni hans um reynslulausn var neitað samhljóða þar sem það myndi „gera lítið úr alvarleika glæpsins.“ Chapman hefur þó sýnt góða hegðun í fangelsinu undanfarin ár.


Chapman, sem er nú 59 ára, hlaut 20 ára til lífstíðar fangelsisdóm fyrir að skjóta Bítilinn fjórum sinnum í bakið fyrir utan heimili Lennons í New York 8. desember árið 1980. Að sögn Chapmans var hann þunglyndur og í sjálfsvígshugleiðingum á þessum tíma.

Taldi hann að hann gæti hugsanlega aflað sér frægðar fyrir að myrða Lennon. Fyrr á þessum örlagaríka degi hafði Lennon áritað plötu fyrir Chapman og minnist hann þess að Bítillinn hafi komið vinalega fram við sig. 

„Á þessum tíma var ég ekki að hugsa um neinn annan en mig,“ sagði Chapman og bætti því við að hann gerði sér nú grein fyrir því að hann hefði ollið fjölda fólks sársauka. „Mér þykir það leitt að hafa valdið slíkum sársauka. Mér þykir það leitt að hafa verið svona mikill fáviti og fyrir að hafa valið rangan veg til dýrðar.“

Chapman er enn giftur og héldu hjónin nýlega upp á 35 ára brúðkaupsafmæli. Chapman segist vera afar trúaður og segist vera tilbúinn til að taka út refsingu sína eins lengi og þörf er á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×