Lífið

"Þvílíkur missir“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Meryl, Melissa og Juliette.
Meryl, Melissa og Juliette. vísir/getty
Lík leikkonunnar Misty Upham, sem er hvað þekktust fyrir að leika í kvikmyndinni August: Osage County, fannst í gær. Misty hafði verið týnd síðan 5. október.

Fregnir um andlát hennar hafa fengið á leikkonurnar Meryl Streep, Juliette Lewis og Melissa Leo, en þær tvær fyrrnefndu léku með Misty í August: Osage County og Melissa lék með henni í Frozen River. 

„Ég get ekki sofið. Of mikið myrkur. Ég er svo leið yfir Misty,“ skrifar Juliette á Twitter.

„Ég veit að hún hefur meira að segja. Og um hvernig hún lést. #RIPMistyUpham,“ bætir hún við.

„Þvílíkur missir...svo sorglegt, svo, svo sorglegt. Ég vona að fólk muni eftir hæfileikum hennar frekar en vandamálum sem við munum aldrei skilja,“ segir Melissa í samtali við Hollywood Reporter. Meryl Streep tekur í sama streng.

„Svo, svo sorglegt að heyra þessar fréttir - hugsanir mínar eru hjá fjölskyldu hennar og með hennar fallega anda.“


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×