Lífið

"Þú logaðir af greddu“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Aron Hannes Emilsson reyndi að syngja sig inní hjörtu landsmanna í Ísland Got Talent á sunnudagskvöldið.

Dómararnir voru almennt ánægðir með Aron, þó sérstaklega Bubbi sem ætlaði ekki að hleypa honum áfram úr áheyrnarprufunum á sínum tíma.

„Þú sannaðir fyrir mér að ég hafði rétt fyrir mér að grípa í hnakkann á þér og kippa þér inn aftur,“ sagði Bubbi sem hefur mikla trú á Aroni.

„Þú logaðir af greddu. Þú átt skilið að fara alla leið.“

Því miður var það ekki raunin og Aron keppir ekki í úrslitaþættinum sem verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 þann 27. apríl.


Tengdar fréttir

Hvern ætlar þú að kjósa á sunnudaginn?

Næsta sunnudagskvöld fá áhorfendur Stöðvar 2 að sjá næstu átta atriði sem bítast um að verða á meðal þeirra sem keppa um tíu milljóna verðlaunafé í hæfileikakeppninni Ísland got Talent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×