Innlent

„Þú ert eins og kallinn í Something about Mary“

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jóhann Gunnar Arnarsson fékk að kenna á því um helgina.
Jóhann Gunnar Arnarsson fékk að kenna á því um helgina.
Jóhann Gunnar Arnarsson, staðahaldari í veiðihúsinu í Laxá í Kjós, er einn fjölmargra sem virðast hafa orðið fyrir barðinu á nýrri tegund bitmýs í Kjós um helgina. „Þær elska mig allar...sumar kannski aðeins of mikið,“ segir Jóhann Gunnar. Hann telur bitin líklega á milli 100 og 200 en þeim sé strax farið að fækka.

„Stelpan sagði einmitt: Þú ert eins og kallinn í Something about Mary,“ segir Jóhann hlæjandi og vísar í samnefnda bíómynd. Þar fær ein aðalpersónan útbrot sem svipar til þeirra sem Jóhann Gunnar fékk.

Dom „Woogie“ Woganowski í kvikmyndinni Something about Mary.
Sextán ára dóttirin slapp

Líkt og fjallað var um í Fréttablaðinu í morgun varð tónlistarmaðurinn Karl Tómasson bitinn í sumarbústað fjölskyldunnar við Meðalfellsvatn í Kjós um helgina. Var hann bitinn á meðan hann svaf og er nú allur undirlagður biti. Saga Jóhanns er áþekk sem einnig var bitinn í svefni. Sama gildir um eiginkonu hans en sextán ára dóttir þeirra slapp með skrekkinn.

„Ætli þetta gerist ekki á svona tveimur sólarhringum. Maður vaknar með smá en svo kemur þetta meira í gegn sólarhring síðar,“ segir Jóhann Gunnar sem eðlilega klæjar. Hann segir þau hjónin hafa eitrað og lokað öllum gluggum. Síðan hafi hann ekki heyrt neitt suð og treystir á að vágesturinn sé á bak og burt.

Áreksturinn í Reykjavíkurhöfn.MYND/BERGHILDUR ERLA BERNHARÐSDÓTTIR
Árás Rússa í Reykjavíkurhöfn

Hann segist hafa heyrt fleiri í bústöðum í Kjósinni kvarta yfir bitum um helgina. Hefur Vísir heyrt af fleirum sem eru út úr bitnir eftir afslöppun í bústað á sömu slóðum um helgina.

Jóhann Gunnar deildi mynd af sér á Facebook þar sem sést glögglega hversu illa hann er farinn eftir næturheimsóknina.

„Fyrst ræðst rússneska heimsveldið á mig og svo skæruliðaherdeild bitmýsins...ég fór verr út úr því. Hvað ætli komi næst?“ segir Jóhann Gunnar sem starfar sem bryti á varðskipinu Þór. Hann var um borð í skipinu þegar rússneska skólaskipið sigldi utan í Þór og Tý á dögunum.

Karl fékk að kenna á nýjasta Íslandsvininum.Vísir/Ernir
Verri en moskító

Náttúrufræðistofnun hefur nú undir höndum eitt eintak af bitmýinu Ceratopogonidae sem bíður nú frekari greiningar. Starfsmaður stofnunarinnar segir að bitmýið sé líklega af ættkvíslinni culicoides og ef svo reynist rétt er um nýja tegund á Íslandi.

„Svo kom fram í bréfinu frá Náttúrufræðistofnun bitin frá þessu kvikindi séu verri en moskítóbit,“ segir Karl Tómasson í Fréttablaðinu í morgun.


Tengdar fréttir

Bitinn af nýrri tegund bitmýs á Íslandi

Líkami Karls Tómassonar er allur undirlagður biti eftir sumarbústaðarferð síðastliðna helgi. Náttúrufræðistofnun Íslands telur að um nýja tegund á Íslandi sé að ræða og rannsakar nú bitmýið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×