Fótbolti

„Þreyttur á þessari spurningu“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Heimir er tannlæknir. Allt í lagi. Búið.
Heimir er tannlæknir. Allt í lagi. Búið. vísir/vilhelm
Því lengra sem íslenska landsliðið í fótbolta nær á Evrópumótinu í Frakklandi því oftar þarf Heimir Hallgrímsson að svara að hans mati spurningu um þreyttasta málefni mótsins.

Það hefur auðvitað vakið athygli að Heimir, annar þjálfara spútnikliðs mótsins, starfi sem tannlæknir en hann er búinn að útskýra svona 50 sinnum á mótinu og í aðdraganda þess að á Íslandi er áhugamennska og allir í fótboltanum sinna öðrum störfum.

Þýskur blaðamaður sem sat blaðamannafund Lars og Heimis í Annecy í dag tókst að bera upp tvær þreyttustu spurningarnar í kringum landsliðið í einu. Hann vildi vita um menntunarstig þjálfara á Íslandi og svo hver væri á tannlæknastofunni fyrir Heimi á meðan hann væri hérna.

Heimir er greinilega búinn að fá nóg af þessari spurningu og svaraði henni með trega.

„Til að svara þessu fljótt þá er ég með annan tannlækni fyrir mig á stofunni. Ég veit að þetta er skrítið en við komum frá landi þar sem fótboltinn er áhugamennska. Ef ég á að segja satt er ég orðinn þreyttur á þessari spurningu,“ sagði Heimir Hallgrímsson.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Heimir: Við viljum enda eins og Leicester

Heimir Hallgrímsson segir að hann vilji að EM-ævintýri íslenska landsliðsins fái sama farsæla endi og saga Leicester í ensku úrvalsdeildinni í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×