Skoðun

"Þolanleg áhætta“ í flugi?

Friðrik Pálsson og Njáll Trausti Friðbertsson skrifar
Í frétt á visir.is fyrir skömmu er vitnað í fréttabréf frá Degi B. Eggertssyni, undir fyrirsögninni:

„Isavia segir óhætt að loka þriðju flugbraut Reykjavíkurflugvallar“.

Umræðan um neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar er alvarlega á villigötum. Þar á meðal er þessi yfirlýsing Dags B. Eggertssonar röng. Isavia segir hvergi að það sé óhætt að loka brautinni.

Áhættumat Isavia varð ekki til átakalaust. Í miðju matsferlinu varð ótrúleg atburðarás. Öll áhættumatsnefndin, þar með taldir starfsmenn Isavia, komst að þeirri niðurstöðu, að lokun brautarinnar væri óásættanleg fyrir flugöryggi á Reykjavíkurflugvelli. Þá tók yfirstjórn Isavia þá dæmalausu ákvörðun að reka alla sérfræðinga flugrekstraraðilanna úr nefndinni og fól einvörðungu innanhússfólki að halda vinnunni áfram. Sú nefnd skautaði fram hjá ýmsum flugöryggisþáttum, svo sem vindhviðum, hemlunarskilyrðum og fleira, sem þeim ber reglum samkvæmt að taka til greina. Um er að ræða breytur sem reglugerð um flugvelli kveður á um að reiknað skuli með.

Á skjön við reglur

Úrvinnsla Isavia í þessu máli er þannig algerlega einhliða og á skjön við reglur, bæði íslenskar og alþjóðlegar, sem um þetta gilda. Öllum málsaðilum er þetta kunnugt.

Niðurstaða áhættumatsins er sú, að eftir lokun neyðarbrautarinnar verði ástandið þolanlegt. Flugöryggi á vellinum verður „þolanlegt“ ef brautinni verður lokað.

Áríðandi er að taka fram, að mikilvægur fyrirvari er í skýrslunni svohljóðandi: „Þetta áhættumat tekur ekki á áhrifum á flugvallarkerfið í landinu, neyðarskipulagi almannavarna, sjúkraflutningum, umhverfisþáttum s.s. veðurfræðilegum áhrifum frá væntanlegum byggingum í nágrenni flugvallarins né fjárhagslegum þáttum flugrekstrar.“

Erfitt er fyrir venjulegt fólk að átta sig á því, hvað fær meirihluta borgarstjórnar í Reykjavík til að ráðast á eitt mikilvægasta samgöngumannvirki landsins, sem er að öllu leyti í eigu íslenska ríkisins og ætla að eyðileggja það. Reykjavíkurflugvöllur hefur háan nýtingarstuðul og gott flugöryggi og skerðing á öryggi hans úr góðum flokki í þolanlegan er óskiljanleg. Þeir sem berjast fyrir svona breytingum taka mikla ábyrgð, sérstaklega varðandi sjúkraflutninga, eins og öllum er kunnugt.

Hjartað í Vatnsmýri skorar enn á Reykjavíkurborg að stöðva framkvæmdir Valsmanna á Hlíðarendasvæðinu áður en alvarlegur skaði hefur hlotist af. Sá milljarða gróði, sem þeir telja sig ætla að fá út úr þessum framkvæmdum sínum er of dýru verði keyptur fyrir almenning í landinu.




Skoðun

Sjá meira


×