Innlent

„Þjónkun stjórnvalda við framleiðendur er alger“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Formaður Neytendasamtakanna segir hagsmunir framleiðenda allsráðandi.
Formaður Neytendasamtakanna segir hagsmunir framleiðenda allsráðandi. Vísir

Ólafur Arnarson, formaður Neytendasamtakanna, segir Brúneggjamálið svokallaða endurspegla það hvernig hagsmunir neytenda séu afgangsstærð á Íslandi. Þeim sé sópað út af borðinu á meðan hagsmunir framleiðenda séu allsráðandi.



Þetta kom fram í máli hans á Sprengisandi þar sem hann var gestur ásamt þeim Katrínu Olgu Jóhannesdóttur, formanni Viðskiptaráðs og Helgu Völu Helgadóttur, lögmanni.



Ólafur segir að Neytendasamtökin hafi ekki farið varhluta af óánægju almennings þegar Kastljósið uppljóstraði um svik Brúneggja ehf. Hann rekur viðbrögðin til vitundavakningar um neytendamál og áhrifa samfélagsmiðlanna.



Sjá einnig: Neytendur blekktir árum saman: Auglýstu vistvæn egg án þess að uppfylla skilyrði



„Ég held að ég hafi aldrei viðbrögðin verða svona snögg eins og á mánudaginn eftir að Kastljósið sýndi Brúneggjaþáttinn. Það reis upp alda á samfélagsmiðlum, það fylltist „inboxið“ hjá mér,“ segir Ólafur.



Hann fagnar því að verslanir hafi í kjölfarið ákveðið að taka eggin úr sölu, sem og aðrar vörur sem merktar eru vistvænar því það er í raun, „ekkert til sem heitir vistvænn landbúnaður.“ Það sé annars vegar venjulegur landbúnaður og hins vegar lífrænn landbúnaður sem um gilda strangar alþjóðlegar reglur. Hið sama á ekki við um vistvænan lanbúnað - sem „er bara einhver óskapnaður.“



Þjónkun við framleiðendur alger

Hann fagnar loforðum Matvælastofnunar um bót og betrun enda sé það grunnkrafa neytenda að fá upplýsingar um vörur og þjónustu. Brúneggjamálið endurspegli þó forgangsröðun stjórnvalda í neytendamálum.



„Þjónkun stjórnvalda við framleiðendur er alger og tilitsemin við neytendur er engin. Engin,“ segir Ólafur „Hagsmunir neytenda eru afgangsstærð, sópað út af borðinu. Hagsmunir framleiðenda eru allsráðandi,“ bætir hann við.



Ólafur telur þó að hlutirnir séu að breytast með tilkomu samfélagsmiðlanna og vitundarvakningar neytenda í kjölfarið. „Neytendur geta greitt atkvæði með fótunum og ég held að þeir séu farnir að gera það í auknum mæli.“



Spjall þeirra má heyra með því að smella hér.


Tengdar fréttir

Réttur framleiðandans í fyrirrúmi

Það sem blasir við eftir að Kastljós fjallaði um Brún­eggjamálið á mánudag er að réttur framleiðandans á Íslandi er mun hærra skrifaður en neytandans



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×