Handbolti

„Þjálfarateymið þarf að slá hnefanum í borðið, hingað og ekki lengra!“

Tómas Þór Þórðarso skrifar
Geir Sveinsson og þjálfarateymi hans er undir pressu í Metz.
Geir Sveinsson og þjálfarateymi hans er undir pressu í Metz. vísir/epa
„Mér finnst alltaf jákvætt þegar menn eru pirraðir. Það hvetur menn oftar en ekki til betri og góðra verka.“

Þetta sagði íþróttafréttamaðurinn og handboltasérfræðingurinn Guðjón Guðmundsson, Gaupi, í Akraborginni á X977 í dag aðspurður um tvö viðtöl við strákana okkar á HM 2017 í Frakklandi sem hafa vakið nokkra athygli.

Það fyrra tók Þorkell Gunnar Sigubjörnsson, íþróttafréttamaður RÚV, við fyrirliðann Guðjón Val Sigurðsson eftir tapið gegn Spáni í fyrsta leik. Fyrirliðinn brást illur við spurningu um hinn víðfræga „slæma kafla“ landsliðsins en hann baðst svo afsökunar daginn eftir.

Það síðara tók Guðmundur Hilmarsson, íþróttafréttamaður Morgunblaðsins, við landsliðsþjálfarann Geir Sveinsson. Geir var ekki skemmt þegar Guðmundur spurði hvort það væri nú ekki brekka framundan eftir tapið gegn Slóveníu en Geir baðst einnig afsökunar á viðbrögðum sínum.

Strákarnir okkar fengu eitt stig í þriðja leik liðsins á HM gegn Túnis í gær og þurfa líklega að vinna næstu tvo leiki til að komast áfram. Hafni íslenska liðið í fimmta eða sjötta sæti riðilsins fer það með smáþjóðunum í Forsetabikarinn sem stærri handboltaþjóðir eins og Ísland vilja helst ekki vita af.

„Auðvitað eru menn pirraðir. Þeir sjá náttúrlega stöðuna fyrir sér. Handan við hornið er Forsetabikar í Brest ef við náum ekki að klára þessa tvo leiki sem við eigum eftir í riðlinum. Það er býsna erfiður biti að kyngja, ekki síst fyrir þjálfarann og ég tala nú ekki um leikmennina,“ sagði Guðjón.

„Ég er gríðarlega ánægður með það þegar að menn setja hnefann í borðið. Ég er bara alinn þannig upp í boltanum að stundum þurfti að nota hnefann. Nú erum við bara á þeim stað í keppninni að þjálfarateymið þarf að taka liðið og slá hnefanum í borðið: Hingað og ekki lengra!“ sagði Guðjón Guðmundsson.

Strákarnir okkar mæta Angóla annað kvöld klukkan 19.45.


Tengdar fréttir

Ásgeir Örn: Ég þarf að rífa mig upp

"Það eru blendnar tilfinningar eftir helgina,“ segir Ásgeir Örn Hallgrímsson en íslenska liðið fékk eitt stig út úr tveimur hörkuleikjum gegn Slóveníu og Túnis.

Kári: Ég verð að grípa boltann

Kári Kristján Kristjánsson hefur ekki fundið fjölina sína á HM og er ekki enn kominn á blað. Hann er eðlilega ekki nógu sáttur við það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×