Innlent

„Þetta yrði aldrei gert við íslenska foreldra“

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Leikskólastjórar í Reykjavík hafa margsinnis fengið símtöl frá vinnuveitendum erlendra foreldra þar sem beðið er sérstaklega um staðfestingu á veikindum barna þeirra. „Þetta yrði aldrei gert við íslenska foreldra“, segir stjórnarkona í Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.

Í fyrradag voru börn á Leikskólanum Nóaborg send heim sökum veikinda starfsmanna. Í kjölfarið fékk leikskólastjórnn símtal frá vinnuveitanda eins foreldrisins sem vildi ganga úr skugga um að starfsmaðurinn væri ekki að ljúga til um ástæður þess að hann þurfti að fara heim úr vinnunni

„Þetta er sennilega í svona sjöunda skipti sem ég hef fengið svona símtal. Þegar barn hefur verið veikt, það hefur verið skipulagsdagur, það hefur þurft að sækja barn af því að það hefur slasast, þá hef ég fengið svona símtöl frá vinnuveitendum. Og í öllum tilvikum eru þetta foreldrar af erlendum uppruna,“ segir Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri á Nóaborg. 

Anna tjáði sig um málið á Facebooksíðu sinni og hefur í kjölfarið rætt við aðra leikskólastjóra sem hafa sömu sögu að segja.

„Ég er búin að heyra til dæmis í morgun í tveimur leikskólastjórum. Annar hafði hringt í foreldri barns og sagt að það þyrfti að sækja barn sem var veikt en þá var leikskólastjórinn beðinn um að hringja beint í vinnuveitandann en ekki í foreldrið sjálft. Í hinu tilvikinu þá hafði foreldri beðið leikskólastjórann um skriflega staðfestingu á því að barn hefði sannarlega verið veikt og ekki mætt í leikskólann,“ segir hún. 

Amelia Mateeva situr í stjórn Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Nýlega sagði erlend móðir henni að hún hefði þurft að vinna lengri vinnudag þar sem hún hafði fengið að skjótast í foreldraviðtal í skóla barnsins síns. Amelia segir að um foróma sé að ræða. Útlendingar séu oft ekki meðvitaðir um réttindi sín hér á landi. 

„Vinnuveitendur misnota þetta stundum. Þetta yrði aldrei gert við íslenska foreldra. Kannski vantar bara trú. Fólk hérna verður bara að trúa að erlenda fólkið sem er hérna á Íslandi, að þau séu ekki verri en Íslendingar.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×