Innlent

„Þetta var ógurlega tignarlegt“

Hrund Þórsdóttir skrifar
Þorsteinn Jónsson, tæknimaður hjá Jarðvísindastofnun Íslands, segir gosið hafa verið lítið en tignarlegt.
Þorsteinn Jónsson, tæknimaður hjá Jarðvísindastofnun Íslands, segir gosið hafa verið lítið en tignarlegt.
Þorsteinn Jónsson, tæknimaður hjá Jarðvísindastofnun Íslands, hefur undanfarið dvalið í skálanum Dreka, rétt hjá Öskju, ásamt hópi vísindamanna frá Jarðvísindastofnun og Veðurstofunni. Tilgangurinn er að setja út skjálftamæla í kringum eldstöðina og fjölga gps mælum á svæðinu.

„Við vorum vakin um miðnætti af Almannavörnum og beðin að fara inn eftir til að kanna hvort það það gæti verið komið gos, því það hefði sést á vefmyndavél. Við rukum bara af stað og horfðum á þetta gos. Það var mjög tignarlegt í smátíma, svona hefðbundið sprungugos,“ segir Þorsteinn.

Hann segir sprunguna hafa verið um einn til einn og hálfur kílómetri á lengd.

„Þetta var tignarlegt í smástund, svo sjatnaði það en rauk svo upp aftur og þetta gekk svona fram undir klukkan fjögur, þá var þetta eiginlega búið.“

Þorsteinn segir gosið hafa verið lítið en hann fylgdist með því úr aðeins um fimm kílómetra fjarlægð.

„Við upplifðum ekki beint hræðslu en maður verður dálítið stressaður, þetta var ógurlega tignarlegt eins og alltaf þegar eldgos eru.“

Þegar Þorsteinn yfirgaf gossvæðið um klukkan hálfsex í morgun var gosinu sjálfu lokið en hann segir mikla gufu hafa stigið upp frá svæðinu. Óljóst er hvað tekur við hjá vísindamönnunum, sem nú eru í Dreka.

„Við ætlum að reyna að klára eitthvað af þessum verkefnum sem við komum hingað til að sinna en svo er bara spurning hvað má og hvort það er eitthvað vit í því. Við eigum eftir að ráða ráðum okkar ásamt Almannavörnum og öðrum.“


Tengdar fréttir

Eldgos hefur ekki áhrif á flugumferð

"Við sjáum ekki á þessu stigi að þetta hafi áhrif á flug okkar. Hugsanlega yrðu minniháttar breytingar gerðar en ekki mikið meira en það.“

Sérfræðingur Veðurstofunnar: Sprungan er nokkur hundruð metra löng

"Það sem við vitum núna er að við höfum fengið staðfestingu um eldgos í gegnum vefmyndavélar ,“ segir Melissa Anne Pfeffer, sérfræðingur á sviði ösku- og efnadreifingar, í samtali við Vísi í nótt en hún var stödd í höfuðstöðvum Veðurstofu Íslands.

Sigkatlar gætu verið frá afboðaða gosinu á laugardag

Líklegast er að bráð frá sigkötlum í Vatnajökli hafi runnið til Grímsvatna. Jarðvísindamenn útiloka ekki að ummerki séu komin fram frá því sem Veðurstofan taldi á laugardag vera eldgos. Kvika skríður áfram til Öskju.

Hér er gosið

Myndin er unnin af Ingibjörgu Jónsdóttur hjá Jarðvísindastofnun upp úr gögnum NASA og USGS.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×