Lífið

„Þetta er hörmung. Martröð“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Courtney Love hefur verið að vinna að endurminningum sínum, The Girl With the Most Cake, í meira en ár með blaðamanninum Anthony Bozza.

Bókin átti upphaflega að koma út í desember í fyrra en var frestað þangað til í byrjun þessa árs. Bókin er hins vegar ekki enn komin út og segir Courtney í viðtali við Paper að skrifin gangi illa.

„Þetta er hörmung. Martröð. Ég ætlaði aldrei að skrifa bók. Það bara gerðist. Og ég er með meðhöfund en þetta er ekki að virka,“ segir söngkonan.

Upprunalega átti bókin að fjalla um líf Courtney fram til ársins 2008 en það hefur breyst.

„Það sem gerist eftir árið 2006 er mitt einkamál. Ég hef ekki talað um það tímabil og ég vil halda því þannig,“ segir hún.

Courtney segir samt frá ýmsu krassandi í bókinni, þar á meðal fíkniefnaneyslu sinni, sambandinu við Kurt Cobain, Billy Corgan og Trent Reznor og hvernig hún vann ung fyrir sér sem fatafella.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×