Innlent

„Þetta er brot á dýraverndarlögum“

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Frá Bessastaðatjörn gær.
Frá Bessastaðatjörn gær. VÍSIR/VILHELM
Lögfræðingur með dýrarétt sem sérsvið segir að eigendur og umsjónarmenn hestanna sem drukknuðu í Bessastaðatjörn í síðustu viku hafi orðið uppvísir að hirðu- og kæruleysi og að dýraverndarlög hafi verið brotin. Matvælastofnun hefur hafið rannsókn á málinu en sérfræðingur stofnunarinnar segir málið nánast án fordæma.

Hræ hestanna tólf sem drukknuðu í Bessastaðatjörn voru hífð upp úr ísnum í gær og flutt í urðunarstöðina við Álfsnes. Útiganga hesta á Álftanesi hefur lengi verið við líði. Hestarnir sem drukknuðu í tjörninni voru í hópi 24 hrossa sem voru á haustbeit á svæðin á vegum Íshesta og hestamannafélagsins Sóta.

Árni Stefán Árnason er lögfræðingur með dýrarétt sem sérsvið. Hann hefur fylgst með Álftanesinu í tvö ár. Hann segir harmleikinn sem átti sér stað í Bessastaðatjörn vera grafalvarlegt mál sem nauðsynlegt sé að rannsaka.

„Þarna hefur hirðu- og kæruleysi átt sér stað að mínu mati,“ segir Árni. „Þetta eru brot á dýraverndarlögum varðandi aðbúnað.“

Árni hefur sent inn kvörtun til Matvælastofnunar vegna beitilandsins á Álftanesi þar sem hann benti á ýmsar hættur.

Árni Stefán Árnason, lögfræðingur.VÍSIR/STEFÁN
„Þetta er mikið flatlendi, ekkert um skjól. Hvergi skjól að sjá fyrir hestana, hvorki manngerð né náttúruleg. Þetta er svæði sem þarf að hafa mikið eftirlit með.“

Segir Árni en hann fullyrðir að Matvælastofnun muni rannsaka málið. Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Rannsókn á drukknun hestanna tólf í Bessastaðatjörn sé í raun þegar hafin, gagnaöflun og annað.

Í framhaldinu munu sérfræðingar Matvælastofnunar fara á staðinn og skoða aðstæður. Jafnframt verða fulltrúar Íshesta, hestamannafélagsins Sóta og aðrir hlutaðeigandi kallaðir á fund.

Árni og Sigríður benda bæði á að aldrei verði hægt að fullyrða hvað átti sér stað á Bessastaðanesinu, af hverju hrossin fóru út á ísilagða tjörnina eða hvenær hvenær ísinn brotnaði.

Hræin voru flutt í urðunarstöðina við Álfsnes.VÍSIR/VILHELM
Líklegt er að hestarnir hafi lent í hrakningum í óveðrinu sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið í síðustu viku og eru grunsemdir um að hrossin hafi verið í leit að skjóli.

„Hafi það verið raunin þá er auðvitað um vítavert gáleysi að ræða af hálfu þeirra sem voru með hestana eða þess sem átti að sjá um hestana.“

Hérna vísar Árni í lög um dýravernd þar sem segir að eigendum eða umráðamönnum dýra ber að sjá þeim fyrir viðunandi vistarverum og fullnægjandi fóðri, drykk og umhirðu. 

Matvælastofnun hefur rétt til að kæra einstaklinga fyrir illa meðferð á dýrum og stofnunin tekur meintar grunsemdir um slíkt til skoðunar. Ef rannsókn leiðir í ljós slíkt hafi átt sér stað er það kært til lögreglu.

Sigríður hjá Matvælastofnun bendir á að þegar litið er til sögu hesta á útigangi, í þeirri náttúru sem hér er að finna, þá verði að líta á málið sem afar sérstakt. Sjötíu þúsund hestar eru á útigangi og atvik sem þessi afar sjaldgæf.


Tengdar fréttir

Tólf hestar drukknuðu í Bessastaðatjörn

Svo virðist sem hestarnir hafi farið út á ísinn og hann látið undan. Einar Bollason hjá Íshestum segir málið skelfilegt og að starfsmenn séu allir í losti vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×