Körfubolti

„Þessi strákur allt of hæfileikaríkur til að vera spila hérna heima“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Haukur Helgi hefur verið frábær.
Haukur Helgi hefur verið frábær. vísir


Domino's Körfuboltakvöld var á dagskrá Stöðvar 2 Sport á föstudagskvöldið.

Þar rökræddu sérfræðingar þáttarins um ýmis álitaefni tengd körfuboltanum á Íslandi og tóku meðal annars fyrir Hauk Helga Pálsson, leikmann Njarðvíkur, sem hefur farið á kostum í deildinni eftir að hann kom heim úr atvinnumennskunni.

Sérfræðingarnir voru báðir sammála um það að það væru forréttindi fyrir íslenskan körfubolta að hann sé kominn heim í deildina. Hann væri aftur á móti allt of góður til að spila í Domnios-deildinni.

Þeir Jón Halldór Eðvaldsson og Fannar Ólafsson ræddu þetta ásamt Kjartani Atla Kjartanssyni, umsjónamanni þáttarins, á föstudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×