Innlent

„Þessi ástæðulausi ótti við galla bólusetninga hefur fengið of mikið vægi“

Atli Ísleifsson og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa
"Viðbrögðin hafa verið mikil og ég tel það eðlilegt. Þetta er mál sem hreyfir skiljanlega við fólki," segir Hildur Sverrisdóttir.
"Viðbrögðin hafa verið mikil og ég tel það eðlilegt. Þetta er mál sem hreyfir skiljanlega við fólki," segir Hildur Sverrisdóttir.
Bakþankar Hildar Sverrisdóttur, borgarfulltrúa, í Fréttablaðinu í dag hafa vakið mikil viðbrögð. Hildur skrifar um bólusetningar og segir meðal annars þetta um foreldra þeirra barna sem bólusetja ekki börn sín:

„En það er ekki svo að foreldrar séu með þessu einungis að setja sín börn í hættu. Þeir eru að setja annarra börn í hættu. Börn sem geta ekki varið sig. Og það er óásættanlegt. Svo óásættanlegt að frelsispési eins og ég sem vill helst hafa færri reglur en fleiri er alvarlega að íhuga að styðja við að bólusetningar verði lögbundnar. Því að í mínum huga er þessu fólki annars guðvelkomið að halda sig bara í einangrun í Hrísey.“

Aðspurð um þá miklu athygli sem pistillinn hefur vakið segir Hildur:

„Viðbrögðin hafa verið mikil og ég tel það eðlilegt. Þetta er mál sem hreyfir skiljanlega við fólki. Auðvitað skil ég að fólki bregði þegar maður tekur svo afgerandi til orða. Til dæmis að það eigi að lögbinda bólusetningar fyrir þau börn sem það geta. Þetta er sett fram í samhengi við umræðuna. Umræðan hefur verið ábyrgðarlaus. Þessi ástæðulausi ótti við galla bólusetninga hefur fengið of mikið vægi og ég svaraði í svipuðum stíl.“

Sjá einnig: Vill ekki bólusetja börnin sín



Orð hennar um að senda foreldrana í einangrun til Hríseyjar hafa vakið sérstaklega mikla athygli þar sem fólki finnst jafnvel að Hríseyingum að vegið.

„Ég er að sjálfsögðu ekki að því,“ segir Hildur hlæjandi. „Þetta er sett fram í samhengi við umræðuna, þar sem öll gæludýr þurfa að fara í einangrunarstöð í Hrísey áður en þau komast inn í landið. Það er gert til að koma í veg fyrir útbreiðslu á dýrasjúkdómum. Þetta er því sett fram í glensi til samanburðar við það að þetta er í raun jafnalvarlegt mál.“

Þá hefur borgarfulltrúinn verið kölluð fasisti og sósíalisti vegna þeirra skoðana sem hún viðrar í pistlinum en Hildur segir að það sé allt annar angi á umræðunni. Málið snúist um bólusetningar barna og mikilvægi þeirra.

„Ég aðhyllist alltaf meira frelsi en ekki en frelsi er alltaf háð því að það ógni ekki öryggi annarra eins og er vert að skoða í þessari umræðu. Ég vil sem borgarfulltrúi skoða einhverjar skorður í skólakerfinu til að bregðast við þessari mögulegu ógn.“


Tengdar fréttir

Bólusetning hefði bjargað

Kona, sem missti rúmlega eins árs son sinn úr mislingum fyrir tæplega fimmtíu árum síðan, segir ótrúlegt að fólk nýti sér ekki þau úrræði sem nútímalæknavísindi bjóða uppá. Hún telur öruggt að bólusetning gegn mislingum hefði bjargað lífi sonar hennar á sínum tíma.

18.000 ástæður fyrir fordómum

Ég er ekki fordómafull kona. Er eiginlega frekar fordómalítil gagnvart lífsháttum ýmiss konar. Með einni mjög afgerandi undantekningu. Til er sá hópur fólks sem fær blóð mitt til að þjóta um æðarnar af hreinum pirringi og fullkomnu óþoli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×