Innlent

„Þeir settu mig í ruslatunnu sem var við leikskólann í Grindavík og pissuðu yfir mig“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Brynhildur Ólafsdóttir segir sögu sína um einelti sem hún varð fyrir í Grindavík.
Brynhildur Ólafsdóttir segir sögu sína um einelti sem hún varð fyrir í Grindavík.
Brynhildur Ólafsdóttir segir farir sínar ekki sléttar eftir skólagöngu sína í Grunnaskóla Grindavíkur en hún segir sögu sína um einelti sem hún varð fyrir í bæjarfélaginu í pistli sem birtist á vefsíðu Kvennablaðsins.

Þar segir hún meðal annars frá því þegar hún var að labba heim frá vinkonu sinni og sex strákar réðust á hana og lömdu hana.

„Þeir settu mig í ruslatunnu sem var við leikskólann í Grindavík og pissuðu yfir mig,“ segir í pistlinum sem má lesa í heild sinni að neðan.

Brynhildur segist einnig hafa orðið fyrir einelti af völdum kennara síns í bænum en Vísir hefur að undanförnu greint frá því að kennari í Grunnskóla Grindavíkur, sem gefið er að sök að hafa lagt nemendur sína í einelti, sé enn við störf í skólanum.

Brynhildur skrifað í pistli sínum að hún hafi verið auðvelt skotmark. 

„Ég ætla að rifja upp eitt atvik frá því að ég var barn. Eitt sinn var ég að labba heim frá vinkonu minni og þá réðust á mig sex strákar, ég reyndi að hlaupa undan þeim en datt og þá náðu þeir mér og lömdu mig, settu mig í ruslatunnu sem var við leikskólann í Grindavík og pissuðu yfir mig. Þegar ég kom heim spurðu mamma mig og pabbi hvað hefði komið fyrir og ég sagði þeim hvað hafði gerst. Þau höfðu samband við skólann en það var ekkert aðhafst."

Hún segir frá því að skólaganga hennar hafi verið erfið og hún hafi sífellt verið uppnefnd af krökkum og barin hvar og hvænær sem er.

„Ég var lítil miðað við aldur og stækkaði ekki eftir fermingu og þá var farið að kanna hverju sætti og ég var send í rannsóknir sem leiddu í ljós að heiladingullinn starfaði ekki rétt og fékk ég þá viðeigandi lyf. En í skólanum var gert grín af mér fyrir þær sakir hversu seinþroska ég var."

Brynhildur talar einnig um að hún hafi verið lögð í einelti af hendi kennara í Grunnskóla Grindavíkur.

„Ég fékk sífellt að heyra það frá hendi umrædds kennara hversu heimsk ég væri. Hann var sífellt að setja út á lesturinn og skriftina mína. Hann sagði oft við mig hluti eins og: “Þú skilur ekkert. Þú veist ekkert í þinn haus. Þú getur ekki lesið neitt því að það kemur allt vitlaust útúr þér.”

Brynhildur segir að kennarinn hafi sagt þetta fyrir framan aðra nemendur í bekknum. Pistil Brynhildar má lesa í heild sinni hér. 




Tengdar fréttir

Einelti kennara í Grindavík: Nemendur hættir að mæta í skólann

Tvær formlegar kvartanir hafa borist skólayfirvöldum vegna kennarans og hafa þær verið til rannsóknar hjá sálfræðingum. Fimmtán nemendur hafa skrifað undir harðorða yfirlýsingu til bæjaryfirvalda þar sem minnst sé á einelti, ofbeldi og þöggun frá fyrri tíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×