Lífið

„Þeir mega nú eiga það þessir strákar að þeir fá borgað fyrir að vera ömurlega ófyndnir“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Strákarnir í Áttunni brugðu á það ráð að lesa upp neikvæðar athugasemdir um sig og þáttinn, sem sýndur hefur verið á Bravó.

Eins og sést í meðfylgjandi myndskeiði voru sumir af þeim sem horfðu á þáttinn ansi orðljótir á samfélagsmiðlunum og taka Áttustrákar þessar athugasemdir mismikið nærri sér.

Fyrirmyndin af þessu myndbandi er eflaust liður í spjallþáttum Jimmy Kimmel þar sem hann fær stjörnurnar vestan hafs til að lesa upp neikvæð tíst um sig sjálfar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×