Tónlist

„Það verður gaman að sjá hvernig við förum að þessu“

Baldvin Þormóðsson skrifar
„Hann náttúrulega kom til landsins út af hinu margfræga afmæli en náði síðan að framlengja ferðina,“ segir Natalie, betur þekkt sem DJ Yamaho, en hún þeytir skífum í kvöld á Dolly ásamt bandaríska rapparanum Zebra Katz. „Það verður gaman að sjá hvernig við förum að þessu, ég er kannski meira í danstónlistinni,“ segir Natalie sem er þó fræg fyrir hipphopp-settin sín. „Við munum allavega brúa mörg bil í kvöld sem er skemmtilegt og krefjandi á sama tíma.“

Zebra Katz er ungur rappari og þrátt fyrir að hafa verið í tónlistarbransanum í aðeins þrjú ár hefur hann náð að skapa sér stórt nafn innan tónlistarheimsins og hefur komið fram ásamt tónlistarmönnum á borð við Azaelia Banks og Lönu Del Ray. Aðspurð hvort hún geti uppljóstrað hverju dansþyrstir gestir Dolly geti búist við segist Natalie ekki vilja skemma ánægjuna.

„Þetta verður að koma á óvart, ég kem með eitthvað frá mér, hann kemur með eitthvað frá sér og svo gerum við eitthvað saman,“ segir plötusnúðurinn. „Ég á allavega von á brjáluðu kvöldi, ég er mjög spennt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×