Innlent

„Það eru yfirgnæfandi líkur á að við náum saman“

Ásgeir Erlendsson skrifar
Smári McCarty, þingmaður Pírata, segir yfirgnæfandi líkur á að flokkarnir fimm sem nú eiga í stjórnarmyndunarviðræðum nái að mynda ríkisstjórn og eitthvað mikið þurfi að gerast svo upp úr slitni.

Rúm vika er síðan Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands veitti Birgittu Jónsdóttur, þingflokssformanni Pírata, stjórnarmyndunarumboð en síðustu daga hafa Píratar átt í óformlegum viðræðum við Vinstri græna, Samfylkingu, Viðreisn og Bjarta framtíð.

Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar sagði í samtali við mbl.is í gærkvöldi að hans tilfinning væri að nú væru menn jákvæðari fyrir markaðsleið í sjávarútvegi en áður. Smári McCarty, þingmaður Pírata og einn þriggja umboðsmanna flokksins segist ekki sjá annað en að lending náist í sjávarútvegsmálum flokkanna.

„Við hljótum að geta náð einhverri lendingu í þessu sjávarútvegsmáli og komist að einhverri sátt sem byggir kannski fyrst og fremst á því að það verði einhverskoanr fyrning og uppboð en að það verði líka tekið tillit til annarra þátta sem hinir ýmsu flokkar eru að leggja til."

Aðspurður hvort að meiri jákvæðni ríki fyrir markaðsleið en áður sagði Smári: „Já ég held að það hafi aldrei vantað jákvæðni, þetta eru fyrst og fremst útfærsluatriði sem fólk hefur mismunandi áherslur í og við erum held ég að ná saman í því."

Smári segir ljóst að allir flokkarnir hafi talað um umbætur í heilbrigiskerfinu og vel hafi gengið að stilla saman strengi flokkanna til að fjármagna umbæturnar. Miklar líkur séu á að flokkarnir geti myndað ríkisstjórn.

„Í rauninni hefur sú vinna bara gengið mjög vel, það eru allir samtaka um að reyna að ná þessu markmiði og auðvitað mismunandi hugmyndir um hvernig á að gera það en við erum svona að mjakast i átt að góðri niðurstöðu."

„Það er yfirgnæfandi líkur á að við náum saman, það þyrfti að fara eitthvað mikið úrskeiðis til þess að það gerist ekki."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×