Innlent

"Það eru allir boðnir og búnir að taka höndum saman"

Eins og sjá má á þessari mynd eru rafmagnsstaurar illa farnir eftir óveðrið. Rafmagnslaust er á nokkrum svæðum á Norðurlandi.
Eins og sjá má á þessari mynd eru rafmagnsstaurar illa farnir eftir óveðrið. Rafmagnslaust er á nokkrum svæðum á Norðurlandi. mynd/theistareykir.is
„Það gefur auga leið að þegar bústofninn er í hættu þá er þungt yfir mönnum. Svona hefur ekki átt sér stað í mörg mörg ár," segir Svavar Pálsson, sýslumaður á Húsavík, sem hefur fundað með viðbragðsaðilum fyrir norðan í allt kvöld.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra lýsti í kvöld yfir neyðarstigi í Þingeyjarsýslu vegna óveðursins sem gekk yfir svæðið í gær. Talið er að hátt í 12 þúsund kindur séu fastar upp á fjöllum.

„Síðustu menn voru að koma í hús sem voru á þessum svæðum. Við erum að fara yfir ástandið og skipuleggja björgunaraðgerðir á morgun, við hefjum leit strax í fyrramálið," segir Svavar í samtali við fréttastofu í kvöld. Reiknað er með að vel á annað hundrað björgunarsveitarmenn taki þátt í aðgerðum á morgun. „Þá hafa bæjarbúar einnig boðið fram hjálp sína, sem og bændur hér á svæðinu. Það eru allir boðnir og búnir að taka höndum saman."

Svavar segir að leitað hafi verið í Mývatnssveit í dag. „En þetta eru fleiri svæði. Það verður farið að Þeistareykjum af fullum þunga á morgun. Þá þarf einnig að halda áfram leit á Reykjaheiði, sem og í Bárðardal. Það eru helst þessir fjórir staðir."

Aðspurður hvort að neyðarstig Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra muni auðvelda björgunarsveitarmönnum störf sín, segir Svavar svo vera. „Þegar svona almannavarnaástand hefur verið virkjað, þá aukast heimildir þeirra sem stjórna aðgerðum. Það verður auðveldara að kalla menn til aðstoðar sem og tæki og tól."

Almannavarnastigin eru þrjú. Fyrsta er óvissustig, því næst kemur hættustig og loks er það neyðarstig. Á heimasíðu Almannavarna segir um neyðarstig: „Neyðarstig einkennist af atburði sem valdið hefur slysum á fólki og/eða tjóni á mannvirkjum. Verkefni á þessu stigi einkennast af tafarlausum aðgerðum til lífsbjargandi aðstoðar og viðleitni til að afstýra fleiri slysum og varna frekara tjóni."

Nánar er hægt að lesa um neyðarstigið hér.


Tengdar fréttir

Neyðarstigi lýst yfir fyrir norðan - 12 þúsund kindur fastar upp á fjöllum

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra lýsti í kvöld yfir neyðarstigi í Þingeyjarsýslum vegna óveðursins sem gekk yfir landið í gær. Talið er að 10 til 12 þúsund kindur séu fastar upp á fjöllum vegna fannfergis. Hættustigin hjá Almannavarnardeild eru þrjú, það er að segja óvissu-, hættu- og neyðarstig.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×