Innlent

„Það er sorglegt að þessar breytingar bitni á innlendri framleiðslu“

Birgir Olgeirsson skrifar
Nýjar reglur um áfengiskaup sagðar bitna á innlendri framleiðslu.
Nýjar reglur um áfengiskaup sagðar bitna á innlendri framleiðslu. Mynd/Anton
Breytingar á reglum um áfengiskaup ferðamanna í fríhöfninni í flugstöð Leifs Eiríkssonar bitna á innlendri framleiðslu. Þetta er mat forsvarsmanna Vífilfells og Ölgerðarinnar en rætt er við þá á vef Túrista þar sem fjallað er um áhrif þessara breytinga.

Reglunum um áfengiskaup ferðamanna var breytt á þá leið í sumarbyrjun að nú geta ferðamenn á leið um fríhöfn flugstöðvar Leifs Eiríkssonar nýtt allan tollinn til kaupa á aðeins sterku áfengi, léttvíni eða bjór. Áður þurfti að blanda saman sortum í samræmi við fimm ólíka samsetningar þar sem mest var hægt að kaupa einn lítra af sterku áfengi en nú er hámarkið 1,5 lítrar, sá sem vill eingöngu vín getur nú tekið sex flöskur í stað fjögurra og er nú hægt að kaupa sex hálfs lítra kippur af áfengu öli en áður var hámarkið fjórar kippur.

Túristi greinir frá því að sala á áfengi í Fríhöfninni hafi dregist saman í lítrum talið frá því þessar breytingar tóku gildi þar sem meira er keypt af víni í stað bjórs. Þetta þýðir að minna selst af bjór sem er framleiddur á Íslandi en meira selst af innfluttu víni.

„Það er sorglegt að þessar breytingar bitni á innlendri framleiðslu en sala á innfluttu léttvíni aukist,“ segir Erla Jóna Einarsdóttir hjá Ölgerðinni við Túrista. „Þetta er auðvitað mjög óheppilegt þar sem bjórinn er að megninu til framleiddur á Íslandi á meðan stór hluti af sterka áfenginu og allt vínið er flutt inn,“ er haft eftir Hreiðari Þór Jónssyni hjá Vífilfelli á vef Túrista.

Vínheildsalar eru hins vegar afar ánægðir með þessa breytingu, líkt og kemur fram í máli Sigurðar Hannessonar, hjá RJC, sem segist vera sáttur við þá reynslu sem komin er á nýju reglurnar því sala á léttvíni hefur aukist.

Sjá nánar á vef Túrista hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×