Innlent

„Það er ráðherraglýjan sem komin er í augu háttvirts þingmanns“

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Hart var tekist á í þinginu í dag um skattbreytingar. Össur Skarphéðinsson gagnrýndi Vigdísi Hauksdóttur, formann fjárlaganefndar sem hefur lýst sig andsnúna hækkun matarskatts, fyrir að taka ekki umræðu um málið í þinginu.

Ágreiningur er meðal meðal þingmanna stjórnarflokkanna um fjárlagafrumvarpið og tekjuöflunarfrumvarp þess. Framsóknarmenn hafa miklar efasemdir um hækkun matarskattsins. Auk hækkunar matarskattsins úr sjö prósentum í í tólf eru undanþágur frá virðisaukaskattinum eitt heitasta deiluefnið í þinginu. 

Það er fleira sem Framsóknarmenn eru óánægðir með. Frosti Sigurjónsson lýsti á mánudag efasemdum um afnám sykurskatts. Í gær steig svo Karl Garðarsson fram og benti á að veltan í seldum laxveiðileyfum í fyrra hefði numið 20 milljörðum króna. Þessi þjónusta ber ekki virðisaukaskatt og ekki stendur til að breyta því. Karli finnst óeðlilegt að þetta sé ennþá undanþegið virðisaukaskatti. 

Karl sagðist í samtali við Stöð 2 frekar eiga von á því að fjárlagafrumvarpið tæki breytingum til að koma til móts við fram komnar athugasemdir.

Líka draumur Össurar að Vigdís verði ráðherra

Þrátt fyrir athugasemdir framsóknarmanna hafa þeir haft hægt um sig í umræðu í þinginu um fjárlagafrumvarpið. Þannig hefur Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar lagst gegn hækkun matarskatts án þess að lýsa því viðhorfi úr ræðustól þingsins á yfirstandandi þingi. Össur Skarphéðinsson þingmaður Samfylkingarinnar gagnrýndi Vigdísi í dag fyrir að taka ekki umræðu um málið í þinginu.

„Háttvirtur þingmaður hefur ekki enn skráð sig á mælendaskrá. Þó hefur hún farið og geipað í fjölmiðlum um það að hún ætli að skýra afstöðu sína hérna í þessum sal. En þegar háttvirtur þingmaður gengur hér framhjá mér og ég horfist í augu við hana þá sé ég hvað það er sem veldur því að hún hefur á síðustu dögum verið á hröðum flótta, svo sér undir hófa hennar, frá fyrri yfirlýsingum. Og það er ráðherraglýjan sem komin er í augu háttvirts þingmanns. Háttvirtur þingmaður á sama draum og ég, að hún verði ráðherra. Því það er líka draumur minn,“ sagði Össur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×