Innlent

„Það er enginn að fara að deyja í höndunum á mér“

Samúel Karl Ólason skrifar
„Ég hnoðaði hann 30 sinnum og ekkert virtist gerast nema að nokkur rifbein brotnuðu með látum.“
„Ég hnoðaði hann 30 sinnum og ekkert virtist gerast nema að nokkur rifbein brotnuðu með látum.“ Vísir/Vilhelm/Getty
Handboltakappinn Logi Geirsson endurlífgaði eldri mann sem hafði farið í hjartastoppa á Tenerife. Þar var Logi í byrjun mánaðarins þar sem maðurinn keyrði á ljósastaur. Hann segir eldri konu hafa komið úr bílnum og kallað eftir hjálp af sálarkröftum. Logi náði manninum út úr bílnum og lagði hann á gangstéttina þar sem hann beitti endurlífgunartilraunum eftir að hann fann ekki púls á manninum.

Logi segir frá þessu atviki á Facebooksíðu sinni.

„Enginn púls fannst og bað ég hótelstarfsmann sem átti leið hjá að aðstoða mig við að leita púls og ljóst var að maðurinn væri í hjartastoppi. Ég hnoðaði hann 30 sinnum og ekkert virtist gerast nema að nokkur rifbein brotnuðu með látum. En eftir ca 20 kröftug þríhöfða hnoð í viðbót tekur maðurinn þessa svakalegu andköf sem mun aldrei renna mér úr minnum og hjartað fer að slá í honum! Mér tókst að endurlífga mann,“ segir Logi.

Logi segist oft hafa hugsað út í hvað hann myndi gera ef hann kæmi að manneskju sem þyrfti að hnoða og þá sérstaklega eftir að hann varð faðir.

„Pældi í því eftir á hvað ég hugsaði meðan ég var að hnoða hann. Hugsaði ég bara hann á eflaust börn og barnabörn í Sviss sem vilja sjá afa sinn aftur og ekki missa hann án þess að kveðja hann. Ég kem þessum manni í gang sama hvað, það er enginn að fara að deyja í höndunum á mér! Þetta var það sem ég hugsaði meðan hvert rifbeinið brotnaði á fætur öðru í hnoðinu.“

Hann ætlaði að reyna að hitta manninn, sem heitir Hans, daginn eftir atvikið en sjúkrahúsið vildi ekki veita honum upplýsingar um hann.

Logi segir að þegar öllu sé á botninn hvolft snúist þetta um boðskapinn.

„Verið búin að ákveða að hjálpa til þegar þið komið að svona aðstæðum, hvort sem það sé slys, hjartaáfall eða einhver í neyð. Við getum alltaf hjálpað.

Þú getur skipt máli og bjargað mannslífi líka.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×