Leikjavísir

„Það er allt í þessu“

Samúel Karl Ólason skrifar
Vin Diesel og Paul Walker í, nei bíddu.
Vin Diesel og Paul Walker í, nei bíddu.
Bræðurnir Óli og Svessi úr GameTíví tóku kappakstursleikinn Project Cars fyrir í nýjasta innslagi þeirra. Uppruna leiksins má rekja til hópfjármögnunar Slightly Mad Studios. Þar náðu þeir markmiði sínu og hófu þróun leiksins. Hann hefur fengið mikla umfjöllun og kom nýverið út fyrir PC, PS4 og Xbox One.

„Fyrstu vikuna sem hann var í sölu, var hann fyrsti bílaleikurinn frá 2013 til þess að fara á toppinn í Bretlandi,“ segir Óli.

Leikurinn er mjög umfangsmikill og inniheldur fjölda bíla, brauta og keppna. Þá er einnig hægt að stilla bílana til henta hverjum ökumanni fyrir sig.

Innslagið má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×