Innlent

„Það er allt í kringum þessa ríkisstjórn sem lyktar af spillingu“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. Vísir/Vilhelm
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, krafðist þess á Alþingi í dag að ríkisstjórnin færi frá og vill að opinber rannsókn fari fram á aflandsfélögum Íslendinga og skattaundanskotum.

„Það er allt í kringum þessa ríkisstjórn sem lyktar af spillingu og hún á að fara frá,“ sagði Bjarkey undir liðnum störf þingsins.

Bjarkey sagði það sæta tíðindum að framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins hafi ekki talið ástæðu til að framkvæmdastjóri flokksins, Hrólfur Ölvisson, færi frá vegna tengsla sinna við aflandsfélög. Viðbrögð Sigurðar Inga Jóhannssonar forsætisráðherra séu gagnrýniverð vegna málsins.

„Við erum að tala hér um að forsætisráðherra landsins hefur sagt og lýsir því yfir að það sé í lagi að eiga fjármuni og eignir í skattaskjólum. Það var þá til þess að formaður hans flokks sagði af sér. Hverslags bull er þetta eiginlega?,“ sagði Bjarkey. Þá furðaði hún sig í því að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafi sagt Ísland hálfgert skattaskjól.



„Fjármála- og efnahagsráherra hann talar nánast fyrir því að það sé í lagi að vera í skattaskjólum enda Ísland svo sem skattaskjól að mati ráðherrans. Hann telur það þjóðinni boðlegt að hann ætli að hafa krumlurnar í því að selja eignir þrotabúanna sem þjóðin situr uppi með, og honum finnst ómerkilegt að allir séu settir undir sama hatt sem í skattaskjólum eiga eignir og fjármuni. Það er eins og ráðherra skattamála skilji ekki að það er engin leið fyrir íslensk skattyfirvöld að sannreyna að fullu hvort til dæmis skattar skili sér,“ sagði Bjarkey. Ráðherrar sem ekki skilji að berjast þurfi gegn tilvist skattaskjóla eigi að segja af sér.

Bjarkey sagði jafnframt nauðsnlegt að fram fari opinber rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattaskjólum, en málið verður til umræðu á Alþingi síðar í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×