Lífið

„Tengi svona 80% af æsku­minningum mínum við það að vera með stand­pínu“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnar Freyr er ekkert að skafa af hlutunum.
Arnar Freyr er ekkert að skafa af hlutunum.
Kvikmyndin Hjartasteinn, eftir Guðmund Arnar Guðmundsson, hefur sópað til sín bæði íslenskum og alþjóðlegum verðlaunum síðustu vikur og mánuði. 

Alþjóðlegu verðlaunin eru nú orðin 24 talsins og nýlega bættust við þau 9 EDDU verðlaun en myndin var kosin kvikmynd ársins á síðustu EDDU hátíð. 

Hjartasteinn fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina. 

Myndin hefur eflaust vakið upp margar æskuminningar hjá þeim 20.000 Íslendingum sem hafa séð hana til þessa en af því tilefni hafa framleiðendur myndarinnar fengið til sín ýmsa þjóðþekkta einstaklinga til að rifja upp sínar æskuminningar.

Að þessu sinni er komið að rapparanum Arnari Frey Frostasyni en hann rifjaði upp mjög vandræðalegar sundferðir á unglingsárunum. Þar hafi hann oft verið fastur í heita pottinum og ekki komist upp úr sökum standpínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×