Lífið

„Syngjandi gleði allan tímann“ á Húkkaraballinu

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Páll Óskar hélt uppi stuðinu í gærkvöldi. Hann þakkar gestum fyrir að hafa hagað sér eins og englar.
Páll Óskar hélt uppi stuðinu í gærkvöldi. Hann þakkar gestum fyrir að hafa hagað sér eins og englar. Vísir/Óskar Friðriksson
Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður, skemmti gestum á Húkkaraballinu í Vestmannaeyjum í kvöld en ballið var í fyrsta sinn haldið inni í Höllinni í Eyjum í ár. Óskar Friðriksson, ljósmyndari Vísis, var á staðnum og náði að fanga stemninguna á stafræna filmu en af myndunum að dæma skemmtu gestir sér konunglega. Myndalbúmið má nálgast hér að neðan.

„Ég tók ákvörðun um að færa sjóvið inn, veðurspáin var vægast sagt hrikalega slæm. Rok og rigning í kortunum,“ útskýrir Páll Óskar. „En svo gekk veðurspáin ekkert eftir. Veðrið var dásamlegt. Ég hafði mestar áhyggjur af því klukkan hálfellefu í gærkvöldi að ekki nokkur maður myndi koma inn í húsið, allir yrðu bara fyrir utan á trúnó. En það var ekki raunin, gestirnir hrúguðust inn um leið og við snerum hurðarhúnunum.“

Páll segir gríðarlega stemningu hafa verið á staðnum og að húsið hafi verið troðið til þrjú í nótt. „Það voru ekki teljandi slagsmál eða neitt, syngjandi gleði allan tímann. Ég vil þakka Húkkaraballsgestum fyrir að hafa hagað sér eins og englar,“ segir Páll sem verður á ferð og flugi um helgina. Pallaballið í gær í Eyjum var fjögurra tíma skemmtun þar sem hann blandar saman sínu efni og öðrum vinsælum lögum. En Palli fær ekki mikla hvíld í dag.

„Ég er nývaknaður en er að undirbúa mig undir barnaskemmtun niðri í Dal í dag. Þar verða myndatökur fyrir þá sem vilja pósa með poppstjörnu,“ segir Páll og hlær. „Svo legg ég af stað norður á Akureyri, tek daginn í það. Þar verður Ein með öllu á Akureyri á morgun með tilheyrandi Sjallaballi. Svo fer ég aftur til Eyja á sunnudaginn, byrja og enda í Vestmannaeyjum.“ Páll kemur fram með hljómsveitinni Buff í Herjólfsdal á sunnudag auk þess sem hann heldur uppi skemmtuninni á Pallaballi í Eyjum frá klukkan þrjú til sex um morguninn.

Höllinn var full af fólki sem var svo sannarlega mætt til að skemmta sér.Vísir/Óskar Friðriksson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×