Viðskipti innlent

„Stjórnarmenn geta verið dregnir til ábyrgðar“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Áslaug Gunnlaugsdóttir.
Áslaug Gunnlaugsdóttir.
„Í allri umræðu um laun stjórnarmanna í stærri félögum virðist gleymast að mikil ábyrgð liggur að baki stjórnarsetu,“ segir Áslaug Gunnlaugsdóttir, lögmaður og eigandi Local lögmanna.

Laun stjórnarmanna HB Granda voru hækkuð um 33,3 prósent á síðasta aðalfundi og fara úr 150 þúsund krónum á mánuði upp í 200 þúsund. Formaður stjórnar fær tvöfaldan hlut eða 400 þúsund. Þetta hefur verið harðlega gangrýnt hjá verkalýðshreyfingunni og á Alþingi.

Sjá einnig: Óæskilegar og afleitar hækkanir að mati forsætisráðherra

„Láðst hefur í umræðunni að gera grein fyrir þeim ástæðum sem kunna að liggja til grundvallar ákvörðun aðalfundar um hækkun fjárhæðar stjórnarlauna,“ segir Áslaug sem situr sjálf ekki í stjórn neins fyrirtækis.

Rannveig Rist sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að hún ætlar ekki að þiggja þóknunarhækkun sem hluthafar í sjávarútvegsfyrirtækinu HB Granda samþykktu að veita stjórn fyrirtækisins.

Sjá einnig: Segir stjórnarlaun í HB Granda meðal þeirra lægstu

„Eftir fall bankakerfisins eru auknar kröfur gerðar til vandaðra stjórnarhátta félaga og þar með til hæfni stjórnarmanna. Með stjórnarsetu í félagi gengst  stjórnarmaður undir ríka ábyrgð og verða laun hans að endurspegla þessa ábyrgð. Stjórnarmenn geta síðar verið dregnir til ábyrgðar ef þeir bregðast eftirlitshlutverki sínu.“


Tengdar fréttir

Allir fyrir einn og einn fyrir alla

Ákvörðun um að hækka laun stjórnar HB Granda hefur hleypt illu blóði í kjaraviðræður. "Setti allt á hvolf,“ segir formaður VSFK. Efling krefst afturköllunar ákvarðana HB Granda. Við ákveðum ekki stjórnarlaun í einstökum fyrirtækjum, segir fram

„Þú þvingar ekkert svar upp úr mér“

Kristján Loftsson gefur ekkert fyrir gagnrýni Vilhjálms Birgissonar á hækkun stjórnarlauna í HB Granda og segist ekki vilja svara því hvort hækka eigi lágmarkslaun til að ná sátt á vinnumarkaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×