Innlent

„Staðan er svolítið snúin"

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Unnið er að því að reyna að afstýra verkfallinu, sem hefjast á að óbreyttu annað kvöld.
Unnið er að því að reyna að afstýra verkfallinu, sem hefjast á að óbreyttu annað kvöld. Vísir/vilhelm
Um þúsund sjómenn eru enn án kjarasamnings og verða áfram í verkfalli þrátt fyrir að Sjómannasamband Íslands hafi undirritað nýjan kjarasamning við útgerðarmenn í nótt. Tvö aðildarfélaga Sjómannasambandsins drógu sig frá viðræðunum seint í gærkvöldi. 

Kjarasamningur sjómanna og útgerðarmanna sem undirritaður var í nótt er til tveggja ára og nær til um 2500 sjómanna. Staðan er hins vegar svolítið snúin. Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur ákvað á elleftu stundu að draga samningsumboð Sjómannasambands Íslands til baka og ásamt þeim gengur Sjómannafélag Íslands af fundi. Því eru enn þúsund sjómenn án kjarasamnings.

„Svona er þetta bara. Samninganefndin okkar var samhljóma nema þeir um að við gætum sætt okkur við þennan samning,“ sagði Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands skömmu eftir undirritun kjarasamningsins í nótt.  

Nýr kjarasamningur sjómanna sem eiga aðild að Sjómannasambandi Íslands verður kynntur félagsmönnum á næstu dögum og verður verkfalli þeirra aflýst á þriðjudagskvöld klukkan átta. Kosning um nýjan kjarasamning mun svo fara fram og mun standa þar til um miðjan desember

„Við erum búnir að ná mjög góðum áföngum og stórum áföngum varðandi samning um fiskverð, nýsmíðiákvæði. Umtalsverða hækkun á hlífðarfatapeningum og fleira. Það er alltaf gott að loka samningum. Þetta er elsta útistandandi mál hjá embættinu. Þannig að það er mjög ánægjulegt fyrir mig og okkur hér í SFS að hafa náð að loka þessu máli,“ sagði Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi í nótt. 

Í tveimur þessum  félögum sem ekki hafa náð samningum við útgerðarmenn eru um þúsund sjómenn sem standa utan við nýgerða kjarasamninga og eru því enn í verkfalli.

„Við munum halda áfram viðræðum strax á morgun við Sjómannafélag Íslands. Hvað gerist með Sjómannafélag Grindavíkur sem að dró samningsumboð sitt til baka og er auðvitað hluti af Sjómannasambandinu sem gerðu samning hér í kvöld. Það á eftir að koma í ljós. En við bindum hins vegar vonir við og við teljum að nokkur hluti skipaflotans geti haldið á veiðar á næstu dögum,“ sagði Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi einnig í nótt. 

Formaður Sjómannafélags Íslands segir að sú ákvörðun að taka ekki þátt í undirritun kjarasamningsins í nótt flæki örlítið stöðuna í þeirra viðræðum.

„Það var nú þannig að það var kominn fullskapaður kjarasamningur til undirritunar og við yfirlestur á honum þá sjáum við að það væri búið að skerða veikindarétt sjómanna verulega. Við skrifum ekki undir kjarasamning með skerðingu á veikindarétti til okkar manna,“ sagði Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Íslands í dag.

 

 


Tengdar fréttir

Útgangan gæti stöðvað hluta flotans

Sjómanna- og Vélstjórafélag Grindavíkur stóð upp frá samningaborðinu í nótt og gæti það orðið til þess að einhver skip þurfi áfram að liggja við landfestar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×