Innlent

„Staðan er sú að mánaðarlaun okkar fyrir fulla vinnu á Íslandi duga okkur ekki til framfærslu“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ekki sér fyrir endann á kjaradeilu lækna.
Ekki sér fyrir endann á kjaradeilu lækna. Vísir/Vilhelm
Tveir læknar á Landspítalanum birtu í gærkvöldi uppsagnarbréf sín á Facebook. Annar þeirra, Jón Örvar Kristinsson, starfar sem meltingarlæknir, og Ólöf Birna Margrétardóttir, starfar sem almennur læknir.

Í bréfum sínum segja þau ástæðuna fyrir uppsögn vera kjaramál lækna, en eins og kunnugt er hefur verkfall lækna nú staðið yfir frá því þann 27. október síðastliðinn.

Í uppsagnarbréfi sínu segir Jón Örvar að spítalinn þurfi nú að auglýsa eftir 60% stöðu lyf- og meltingarlæknis við meltingardeildina. Hann lýsir hæfniskröfum viðkomandi en segir að ef til vill sé betra að segja umsækjendum ekki „að síðastliðin 5 ár hafa fjórir meltingarlæknar hætt störfum, einn vegna aldurs en hinir þrír vegna kjara sinna og aðstöðu við spítalann.“

Tveir af þeim sem hættu vegna kjara sinna og aðstöðu hafi farið erlendis til starfa og einn hafi fundið sér annað starf hér á landi. Þá segir Jón Örvar jafnframt:

„Auk þess hafa nær allir starfandi meltingarlæknar við deildina (6/8) minnkað við sig stöðuhlutfall en aukið það á öðrum vettvangi. Álagið hefur því aukist mikið á þá sem eftir eru og sífellt verður erfiðara að sinna þeim verkefnum sem berast vegna manneklu. Það myndi líklega einnig fæla frá ef viðkomandi vissi að frá 2008 hefur engin bæst í hópinn, auglýst var staða síðastliðið vor, ein umsókn barst en sá aðili hætti við þegar honum voru ljós kjör og vinnuaðstæður.“

Mánaðarlaun meltingarlæknis á Landspítalanum fyrir 60% starf eru 358.083 krónur. Það gera um 180.000 krónur í útborguð laun. Jón Örvar tekur þó fram að launin verði lægri ef reynsla umsækjanda sem sérfræðingur í meltingarlækningum sé eitthvað styttri en sú 10 ára reynsla sem hann sjálfur hefur.

Í lok bréfsins segir svo Jón Örvar:     

„Vegna stöðu kjaramála lækna á Landspítala en ég hef nú ákveðið að sinna fremur öðrum áhugamálum. Ég er viss um að fleiri sérfræðilæknar á Landspítala hyggjast gera það sama og rétt að stjórnendur íslensks heilbrigðiskerfis átti sig áður en það verður um seinan.“

Mannekla á Landspítalanum veldur því að vaktabyrðin hefur verið óhófleg

Ólöf Birna, almenni læknirinn sem einnig birti bréf sitt í gær, segir grunnlaun sín á Íslandi vera 410.763 krónur fyrir skatt. Hún segir þau ekki duga til framfærslu og gerir að umtalsefni vaktaskyldu lækna á Landspítalanum:

„Eins og margir hafa bent á er möguleikinn til staðar að vinna vaktir umfram dagvinnu, á flestum sviðum innan Landspítalans er það nánast skylda. Ég gæti unnið á kvöldin, nóttunni og um helgar til að hífa upp launin en hef takmarkaðan áhuga á því með þrjú börn á leikskólaaldri og þar að auki maka sem er líka læknir með vaktaskyldu. Við það hækka launin vissulega en það er á kostnað fjölskyldunnar og heilsunnar. Staðan er sú að mánaðarlaun okkar fyrir fulla vinnu á Íslandi duga okkur ekki til framfærslu.“

Ólöf Birna segir manneklu á spítalanum svo valda því að vaktabyrði hafi verið óhófleg. Þar af leiðandi geti hvorki hún né maðurinn hennar, sem einnig er læknir, ráðið sig í fullt starf með vöktum á þeim sviðum sem þau ætla að sérhæfa sig á. Þau myndu einfaldlega vera á vöktum til skiptis sem sé dæmi sem gangi einfaldlega ekki upp en hjónin eiga þrjú börn.

Þá segist Ólöf Birna aldrei hafa séð margumrædda milljón á launaseðli sem sagt er að læknar fái að meðaltali í laun. Hún hafi einu sinni fengið 900.000 krónur í laun, fyrir skatt, en þá hafði hún unið 100 vaktir á spítalanum utan dagvinnutíma. Hún segir kjarna málsins vera „ágæt laun en verulega skert lífsgæði.“

Í lok uppsagnarbréfs síns segir Ólöf Birna svo:

„Ef dagvinnulaunin væru hærri þannig að við þyrftum ekki að taka jafn mikið af vöktum til að hafa í okkur og á. Ef vinnuveitandinn myndi ekki gera kröfu um svona mikla vaktabyrði sem skapast af manneklu. Vegna bágra kjara og slakra vinnuaðstæðna sjáum við okkur ekki annað fært en að fara. Við gerum ráð fyrir að vera úti í 7-10 ár. Við vitum ekki hvort við flytjum heim aftur. Það er vitanlega það sem mann langar, að vera Íslendingur og búa á Íslandi. En nú, með tölvutækni og tíðum flugferðum, er fjarlægðin ekki svo mikil. Ég sé það a.m.k. ekki fyrir mér að koma heim til þess eins að vinna talsvert meira, vinna á ókristilegum tímum og fá verri laun. Þá væri fjölskyldan mín að tapa lífsgæðum.“


Tengdar fréttir

Þunginn fer vaxandi í læknaverkfallinu

Þunginn í verkfalli lækna fer vaxandi og óttast yfirlæknir á bráðamóttöku að eldra fólk veigri sér við að leita þangað vegna álags. Fjármálaráðherra segir að ekki verði orðið við óraunhæfum kröfum lækna sem vilji fimmtíu prósenta launahækkun.

Enginn árangur á kjarafundi lækna

Fundi samninganefnda Skurðlæknafélags Íslands, og ríkisins í kjaradeilu skurðlækna hjá ríkisáttasemjara lauk um klukkan fjögur í dag, án árangurs.

Verkfall lækna hófst á miðnætti

Tveggja sólarhringa langt verkfall lækna á kvenna- og barnasviði og rannsóknasviði Landspítalans, á heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni hófst á miðnætti.

„Læknar eiga engra annarra kosta völ“

Félag læknanema lýsir yfir vonbrigðum vegna pattstöðu samningaviðræðna ríkissáttasemjara, Læknafélags Íslands og Skurðlæknafélags Íslands.

Skurðlæknar hefja verkfallsaðgerðir

Boðað hefur verið til samningafundar ríkisins og Læknafélags Íslands hjá ríkissáttasemjara í dag og skurðlæknar hafa verið boðaðir til fundar á morgun, en verkfall þeirra hófst í morgun og verður í þrjá daga.

Lausn á kjaradeilu lækna ekki í augsýn

Fundur milli samninganefndar Læknafélagsins og ríkisins verður haldinn klukkan fjögur. Litlar líkur á að ný spil verði lögð á borðið á fundinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×