Bílar

Sprengjuhótun í vélaverksmiðju Ford

Finnur Thorlacius skrifar
Vélaverksmiðja Ford í Romeo í Michican.
Vélaverksmiðja Ford í Romeo í Michican.
Loka varð einni vélaverksmiðju Ford í Bandaríkjunum í gær vegna sprengjuhótunar og voru 500 starfsmenn hennar sendir heim. Aðrir 500 starfsmenn sem áttu að leysa fyrri vakt dagsins af voru beðnir um að mæta ekki í vinnuna þann daginn.

Ford fékk sprengjuhótunina uppúr kl. 7 að staðartíma í gær. Er síðast var vitað hafði engin sprengja fundist en leit stóð yfir. Lögregla og leitarteymi var kvatt á staðinn, en Ford hefur varist fréttum af þessari hótun og vinnustöðvuninni.

Vélaverksmiðja þessi er í bænum með skondna nafnið, þ.e. Romeo í Michican fylki, en víst er að sá sem tilkynnti um sprengjuna er ekki sérlega rómantískur. Í verksmiðjunni hafa verið smíðaðar Ford vélar frá árinu 1973.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×