Innlent

„Spes að þessir karlar vantreysti nýju kynslóðinni“

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Andri telur að nútíma tækni, ferðaþjónusta og  ný viðhorf í sambandi við matvæla framleiðslu og annað verði til þess að lyfta landsbyggðinni upp.
Andri telur að nútíma tækni, ferðaþjónusta og ný viðhorf í sambandi við matvæla framleiðslu og annað verði til þess að lyfta landsbyggðinni upp. Vísir/Valli
Forsetaframbjóðandinn Andri Snær Magnason mætti í morgun í útvarpsþáttinn Brennsluna á FM957 og svaraði spurningum Kjartans Atla og Hjörvars Hafliða þáttastjórnenda. Þar tjáði hann sig meðal annars um mótframbjóðanda sinn Davíð Oddson og Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands.

„Mér finnst spes þegar þessir karlar fóru að vantreysta nýju kynslóðinni,“ svaraði Andri aðspurður um hvað honum hefði fundist um framboð Davíðs og þá ákvörðun Ólafs á sínum tíma að bjóða sig fram aftur. „Þetta er eins og þjóðin sé fjölskyldufyrirtæki sem þeir gátu ekki hugsað sér að afhenda áfram. Það kom á óvart hvað þessi öfl voru ótilbúin að treysta næstu kynslóð.“

Áherslur Andra og Davíðs andstæður

Þegar Andri var beðinn um að máta sínar áherslur við aðra frambjóðendur sagði hann; „Það sem Davíð stendur fyrir er í raun og veru andstæða þess sem ég hef staðið fyrir í gegnum tíðina.“

Þar átti Andri eflaust við áherslur sínar í náttúruvernd en Andri Snær hefur verið mótfallinn stórvirkjunum á landsbyggðinni. Aðspurður um hvort hann hefði fengið landsbyggðina upp á móti sér með því að andmæla stórvirkjunum svaraði forsetaframbjóðandinn;

„Í raun fjallar Draumalandið allt um landsbyggðina. Ég tel og taldi þegar ég var að skrifa þá bók að það væri einmitt landsbyggðin sem væri að fara í gegnum verstu dýfuna. Ég tel að nútíma tækni, ferðaþjónusta og  ný viðhorf í sambandi við matvæla framleiðslu og annað væri að fara lyfta henni upp. Mér fannst sorglegt að tímabundin dýfa og samfélags breyting myndi í rauninni valda því að fólk í örvæntingu myndi fórna sínu öllu sínu baklandi. Sínum fossum og sínum öræfum. Ég taldi ekki að þessi atvinnustefna væri til langs tíma, næstu 20 – 30 árin, það sem myndi ráða úrslitum um landsbyggðina. Það að sjá bæinn sinn deyja er alveg jafn sorglegt og að sjá uppáhalds fossinn sinn hverfa. Ég skil þær tilfinningar og tók vissulega áhættu þegar ég steig inn í þessa umræðu.“

Hlusta má á viðtalið í heild sinni hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×