Innlent

„Spennandi og yndisleg áskorun fyrir mig“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Kolbrún Baldursdóttir í ráðhúsinu í morgun.
Kolbrún Baldursdóttir í ráðhúsinu í morgun. Skjáskot/Stöð 2
Flokkur fólksins hefur verið að mælast með á bilinu 3-4% fylgi í könnunum. Miðað við síðustu kannanir gæti Kolbrún Baldursdóttir, oddviti flokksins, því verið á leið inn í borgarstjórn.

Kolbrún var til viðtals í ráðhúsinu í morgun og sagði aðspurð að kosningabaráttan hafi gengið mjög vel.

„Þetta hefur gengið mjög vel, þetta hefur verið krefjandi en spennandi og yndisleg áskorun fyrir mig. Ég er þakklát fyrir að hafa verið valin oddviti Flokks fólksins og við höfum alla tíð verið mjög bjartsýn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×