Fótbolti

„Skítt með það - förum á pöbbinn“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir
Arnór Smárason og Guðlaugur Victor Pálsson, leikmenn sænska úrvalsdeildarfélagsins Helsingborg, segja að umhverfi íslenska landsliðsins hafi gerbreyst með ráðningu Lars Lagerbäck fyrir þremur árum.

„Áður fyrr snerist þetta allt um að fara út á lífið með landsliðsfélögunum. En svo kom Lagerbäck,“ segja þeir í viðtalinu sem birtist í Helsingborgs Dagblad og má lesa í heild sinni hér.

Árangur Lagerbäck með íslenska landsliðinu talar sínu máli. Liðið komst í umspilið fyrir HM 2014 og er nú ósigrað eftir fyrstu þrjá leikina í undankeppni EM 2016 með markatöluna 8-0. Sigur liðsins á Hollandi á mánudag er einn allra merkasti sigur Íslands frá upphafi.

Þegar nýr styrkleikalisti FIFA verður gefinn út í næstu viku verður Ísland væntanlega á meðal efstu 30 þjóða heimsins í fyrsta sinn og hæst skrifaða Norðurlandaþjóðin. Sá árangur hefur ekki farið framhjá Svíum enda var Lagerbäck þjálfari sænska landsliðsins í á annan áratug.

Arnór og Guðlaugur ræða um ráðningu hans og hvernig íslenskir knattspyrnumenn hafa dafnað undanfarin ár. En einnig hvernig stemningin var í landsliðinu áður en að Lagerbäck tók við.

„Það breyttist allt með Lars Lagerbäck. Þá varð þetta fagmannlegt. Ég hef ekki verið lengi í landsliðinu en vinir mínir hafa sagt mér sögur um hvernig þetta var áður en að Lars kom til sögunnar.“

„Litið var á landsleikjatarnir sem frí. Þetta snerist um að fara heim, hitta fjölskylduna og fara á pöbbinn með strákunum. Það smitaði sig inn í frammistöðuna í leikjunum. Liðið fékk kannski mark á sig en þá hugsuðu þeir bara með sér: „Skítt með það - förum á pöbbinn“,“ er haft eftir Guðlaugi.

Arnór var fyrst valinn í landsliðið af Ólafi Jóhannssyni árið 2008 og hann tekur undir orð Gauðlaugs. „Áður fyrr voru landsliðsferðir eins og skemmtileg samkvæmi þar sem ekkert skipulag var á leik okkar. Allar þrjár æfingar liðsins fyrir leiki voru eins - ungir gegn gömlum. Það var ekkert rætt um taktík.“

„En nú sýna leikmenn þjálfaranum virðingu,“ bætir Guðlaugur við. „Það er „no bullshit“ hjá Lagerbäck.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×