Íslenski boltinn

„Skemmtilegur viðburður af döpru tilefni“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Klukkan 12.30 í dag fer fram fjáröflunarleikur fyrir Abel Dhaira, markvörð ÍBV, sem berst nú við krabbamein.

Abel hefur spilað með ÍBV í alls fjögur tímabil en veiktist afar snögglega nú í vetur. Hann greindist með krabbamein í ristli í desember en hefur verið í meðferð hér á landi síðan í janúar.

„Þetta gerðist mjög hratt. Hann spilaði sinn síðasta leik fyrir ÍBV í október og er orðinn fárveikur af krabbameini í desember,“ sagði Páll en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.

Páll segir að krabbameinið hafi byrjað í ristli en að síðar hafi komið í ljós að hann væri enn veikari en hann sjálfur taldi í fyrstu.

„Þetta er kostnaðarsamt fyrir hann og við erum að reyna að hjálpa honum eins og við allir getum. Það hafa allir tekið mjög vel í það.“

Sjá einnig: „Ég er djúpt snortinn og Abel er orðlaus“

„En kannski er leikurinn ekki síst til að gleðja hann. Þegar við sögðum honum frá þessu fylltist hann svo mikilli gleði. Hann táraðist yfir því að fólk væri tilbúið að leggja þetta á sig fyrir hann.“

„Við erum rétta honum hjálparhönd, bæði andlega og eitthvað smávegis fjárhagslega líka.“

Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks og íslenska landsliðsins, er upphafsmaður fjáröflunarleiksins en Páll segir að allir sem hefur verið leitað til hafi verið viljugir að leggja hönd á plóg.

„Þó af döpru tilefni sé þá gæti þetta orðið mjög skemmtilegur viðburður.“

Páll segir að veikindi Abels séu mönnum holl áminning, ekki síst í ljósi þess átaks sem á sér árlega stað í marsmánuði á Íslandi, Mottumars.

„Þetta sýnir líka að þetta getur gerst. Hér erum við með íþróttamann í toppformi og leggst þetta með þessum þunga á hann. Á örfáum vikum hefur meinið fest rætur út um allt í honum.“

Söfnunarreikningur: 582-14-602628

Kennitala: 680197-2029.

Styrktarsímanúmer:

9071010 – 1000kr

9071020 – 2000kr

9071030 – 3000kr




Fleiri fréttir

Sjá meira


×