Fótbolti

"Skál fyrir stönginni!“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Íslendingar misstu sig þegar Dragovic brenndi af víti.
Íslendingar misstu sig þegar Dragovic brenndi af víti. Vísir/AFP
Það ætlaði allt um koll að keyra á Twitter þegar Aleksandr Dragovic brenndi svo skemmtilega af víti í leik Íslands og Austurríkis á EM. Ari Freyr var dæmdur brotlegur fyrir að halda í Denis Alaba, besta leikmann Austurríkis. Þeim varð þó ekki kápan úr því klæðinu og Dragovic negldi í stöngina, Íslendingum til mikillar gleði en Strákarnir okkar leiða í hálfleik 1-0.

Spennan var nánast óbærileg þegar Dragovic tók vítið og margir sem gátu vart höndlað það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×