Viðskipti innlent

„Sjálfsagt fer þetta nýja eignarhald misjafnlega í menn“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hallgrímur segir að nýtt eignarhald eyði óvissunni sem verið hefur í kringum félagið.
Hallgrímur segir að nýtt eignarhald eyði óvissunni sem verið hefur í kringum félagið. Vísir/Valli
„Sjálfsagt fer þetta nýja eignarhald misjafnlega í menn,“ segir Hallgrímur Thorsteinsson, ristjóri DV, um breytingar á eigendahópi útgáfufélags DV og heldur áfram:

„Eignarhaldið hefur ekki verið burðugt undanfarin ár og þetta eyðir þeirri óvissu sem hefur verið um það.“

Vísir sagði í dag frá því að Björn Ingi Hrafnsson myndi kaupa meirihluta í DV ehf og í kjölfarið sendi hann frá sér yfirlýsingu vegna málsins. Þar kemur fram að Pressan ehf eignist ríflega tvo þriðju hlutafjár í DV ehf. Í yfirlýsingunni kemur fram að Hallgrímur haldi áfram sem ritstjóri og að Þorsteinn Guðnasen, sem er núverandi stjórnarformaður sitji áfram í stjórn félagsins.

„Það sem er undirstrikað í þessari fréttatilkynningu er að DV verður rekið áfram sem sjálfstæður og óháður miðill. Rifstjórnarstefna DV er óbreytt,“ segir Hallgrímur. Hann segir það eigi eftir að koma í ljós hvernig starfsmenn taki í breytingarnar á eigendahópnum. „Við eigum eftir að funda um þetta. Björn Ingi kemur hingað síðar í dag.“

Nýir eigendur tóku yfir DV ehf. nýverið og var ný stjórn skipuð á hlutahafafundi í septembermánuði. Í kjölfarið var Reyni Traustasyni vikið úr starfi ritstjóra og starfslokasamningar gerðir við Jón Trausta Reynisson framkvæmdastjóra og fyrrverandi ritstjóra, Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur aðstoðarritstjóra og Heiðu B. Heiðarsdóttur auglýsingastjóra.



Þorsteinn Guðnason hefur farið eeð meirihluta hlutafjár í DV ehf. samkvæmt skráningu hjá Fjölmiðlanefnd. Hann hefur verið skráður fyrir 51 prósenta hlut í félaginu en eigendahópurinn hefur tekið nokkrum breytingum á síðustu vikum. Listinn sem nú er birtur er frá 17. nóvember síðastliðnum. Félag í eigu Ástu Jóhannesdóttur er næst stærsti eigandi blaðsins, með rúmlega 21 prósenta hlut.


Tengdar fréttir

Björn Ingi kaupir DV

Reiknað er með að gengið verði frá kaupunum í dag eftir nokkurra vikna viðræður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×