Heilsa

Sex vikna sykurfyllerí

Rikka skrifar
Innan skamms verður frumsýnd heimildarmyndin, That sugar film, sem að ástralski leikarinn Damon Gameau skrifaði og framleiddi. Í myndinni gerir Damon tilraunir á sjálfum sér og fer á 6 vikna sykurfyllerí.

Á þessu tímabili neytir hann 40 teskeiða af sykri á degi hverjum og má sjá hvernig áhrif sykurinn hefur á andlegt og líkamlegt ástand Damons. Innan þriggja vikna var Damon orðin skapstyggur og leið illa hverja stund auk þess sem að hann var farinn að þróa með sér alvarlega lifrarfitu.

„Ég drakk ekki gos, borðaði ekki súkkulaði, í né annan augljósan sykur. Allur sykurinn sem að ég neytti var að finna í heilsuverslunum eins og fitulítið jógúrt, múslibarir, ávaxtadjúsar og íþróttadrykkir. Við gefum börnunum okkar þessar matvörur og höldum að við séum að gera þeim gott," segir Damon.

Mikil eftirvænting ríkir í kringum myndina og eru leikarinn Stephen Fry og sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver meðal talsmanna hennar.


Tengdar fréttir

það þarf þjóðarátak gegn sykurneyslu

Gunnar Már Sigfússon segir sykurinn vera helsta og erfiðasta andstæðinginn sem mannkynið hefur þurft að kljást við. Hann sé ein helsta orsök algengustu lífsstílssjúkdómanna og nú sé kominn sá tími þar sem hver og einn þarf að taka ábyrgð á eigin neyslu.

Nokkrar ástæður sykurfíknar

Í flestu tilfellum kemur löngun í sykur fram vegna vana og fíknar í hann en einnig vegna ýmissa heilsufarsvandamála sem að fólk er að eiga við.

Um gervisykur

Það hljómar afskaplega vel í margra eyrum að geta gætt sér á einhverju sem bragðast eins og sykur en er ekki stút- fullt af hitaeiningum.

Hin mörgu andlit sykurs

Sykur er góður, já við vitum það, en hann gefur líka fallega áferð, meiri fyllingu í matinn og sælutilfinningu eftir átið. Er það ekki hin fullkomna samsetning, ekki satt? Jú, því miður er það alveg hárrétt.

6 matartegundir með földum sykri

6 vinsælar matartegundir sem margir borða reglulega án þess að gera sér grein fyrir hversu mikið magn sykurs þeir eru að innbyrða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×