Glamour

Sarah Jessica Parker snýr aftur á skjáinn

Ritstjórn skrifar
skjáskot
Leikkonan Sarah Jessica Parker sagði frá því á Instagramsíðu sinni í gær að hún væri á leiðinni aftur á skjáinn og núna í aðalhlutverki í þáttunum Divorce sem eru framleiddir af sömu sjónvarpsstöð og gerði Sex and the City, HBO. 

Eins og titill þáttana gefur til kynna fjalla þættirnir um Frances sem er að ganga í gegnum skilnað og hvernig hún tekst á við það, en það er Thomas Haden Church leikur eiginmann Söruh.

Mikil eftirvænting er fyrir þáttunum sem verða frumsýndir vestanhafs í haust en íslenskir aðdáendur Söruh Jessicu Parker þurfa ekki að örvænta því þættirnir verða frumsýndir á Stöð 2 í október. 

Við getum allavega ekki beðið enda Sarah Jessica Parker í miklu uppáhaldi og við bjóðum hana velkomna á skjáinn á nýjan leik, þótt fyrr hefði verið. 






×